Hólar University College
Ferðaþjónusta á Flateyri : samstarf hagsmunaaðila og viðhorf heimamanna
Abstract
dc:description.abstractFerðaþjónustan á jaðarsvæðum landsins á stöðum eins og Flateyri á Vestfjörðum hefur aðeins verið að taka við sér á undanförnum árum. Enn en mikill munur fjölda ferðamanna á slíkum svæðum miðað við vinsæla ferðamannastaði á Suðurlandi. Á Flateyri hefur sjávarútvegurinn verið aðalatvinnuvegurinn en nú hafa verið að spretta upp lítil fyrirtæki í ferðaþjónustunni. Þar sem uppbyggingin í ferðaþjónustunni á Flateyri er á byrjunarstigi var meginmarkmiðið með þessari rannsókn að kanna viðhorf og áhuga heimamanna til ferðaþjónustunnar. Einnig var kannað hvort það væri samstarf á milli ferðaþjónustuaðila á staðnum eða hvor það væri ávinningur fyrir þá aðila að vinna saman. Í rannsókninni var notast við eigindlegar rannsóknaraðferðir þar sem fyrirliggjandi gögn voru notuð sem og hálfopin viðtöl við heimamenn og íbúa sem starfa í ferðaþjónustunni á Flateyri. Skoðað var klasasamstarf út frá hugmyndafræði Porters og hvort slíkt samstarf mætti nota í ferðaþjónustunni á Flateyri til að ná árangri í frekari uppbyggingu. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að áhugi heimamanna á ferðaþjónustunni er mikill og telja þeir hana vera samfélaginu í hag og ferðaþjónustuaðilar hafa mikinn áhuga á samstarfi við aðra í greininni en helst er það skortur á þekkingu sem hefur komið í veg fyrir að fyrirtæki og aðrir hagsmunaðilar vinni saman.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Steinunn G. Einarsdóttir 1983-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/25068
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/25068