Back to results

Hólar University College

Byggingararfur og þróun áfangastaða í ferðaþjónustu : Kópavogur

Abstract

dc:description.abstract

Eftir að til stóð að rífa Menntaskólann í Reykjavík árið 1950, varð vitundarvaking meðal Íslendinga varðandi byggingararf. Húsafriðunarsjóður var stofnaður árið 1975, sem veitir styrki til viðhalds og enduruppbyggingu eldri húsa. Í fræðilegum hluta ritgerðarinnar er fjallað um áfangastaði með tilliti til markaðssetningar í ferðaþjónustu, sérstaklega í þéttbýli. Fyrirliggjandi þekking á grunnþáttum í uppbyggingu áfangastaða er borin saman við aðstæður í Kópavogi. Þá er fjallað um menningararf og hvernig hægt er að nýta byggingararf sem aðdráttarafl í ferðaþjónustu. Sú umræða er tengd sögu og byggingararfi Kópavogs. Tilgangur rannsóknarinnar er að greina stöðu markaðsmála og stefnu bæjaryfirvalda í Kópavogi í ferðamálum. Þá er markmiðið að skoða með hvaða hætti megi nýta þann byggingararf sem liggur í Hressingarhælinu og gamla Kópavogsbænum, í ferðaþjónustu í Kópavogi. Helstu niðurstöður eru þær að ekki er til ferðamálastefna fyrir Kópavogsbæ, þar er engin upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn og stefna í markaðsmálum liggur ekki ljós fyrir. Ímynd Kópavogs tengist helst menningu og listum, en ímynd bæjarins sem áfangastaður í ferðaþjónustu er veik. Nauðsynlegt er fyrir Kópavogsbæ að hefja vinnu við stefnu í ferðamálum. Þá þarf að efla markaðsstarfið með því að opna vefsíðu fyrir ferðamenn og upplýsingamiðstöð. Auka þarf þátt Markaðsstofu Kópavogs í kynningarmálum bæjarins og hugsanlega má staðsetja upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn í Hressingarhælinu eða gamla Kópavogsbænum. Lykilhugtök: Áfangastaður, markaðssetning, menningararfur, byggingararfur í ferðaþjónustu, Kópavogur.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Reynir Jónasson 1971-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25066
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25066

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Reynir Jónasson 1971-. Byggingararfur og þróun áfangastaða í ferðaþjónustu : Kópavogur. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25066