Back to results

Hólar University College

Hengifoss - Gullfoss Austurlands : sjálfbær uppbygging og ábyrg auðlindastjórnun til framtíðar

Abstract

dc:description.abstract

Fjölgun ferðamanna til landsins eykst með hverju ári og þar er það náttúran sem heillar hvað mest. Af þessu leiðir að ágangur ferðamanna á vinsælustu stöðum landsins svo sem Gullfoss og Geysi er mikill. Þar sem náttúruauðlindir eru viðkvæmar skiptir miklu máli hvernig umgengni og nýting á þeim er háttað í þjónustu við ferðamenn. Í þessari ritgerð verður áfangastaðurinn Hengifoss greindur út frá auðlindum hans og skoðað hvernig þróun hans sem sjálfbærs áfangastaðar ætti að vera. Unnin er greinin út frá fyrirliggjandi gögnum og vettvangsferð og áfangastaðurinn metinn út frá þolmarka hugtökum og líftímakúrfu Butlers um þróun áfangastaða. Í umræðum verða settar fram tillögur að úrbótum og vangaveltur varðandi það á hvaða leið þróun áfangastaðarins er og hvort hún sé á réttri leið. Einnig bent á hvaða leiðir eru til að bregðast við því ástandi sem niðurstöður leiða í ljós. Lögð fram niðurstaða út frá hugmyndafræði sjálfbærni og auðlindastjórnunar sem gefur til kynna að auðlindin Hengifoss er ekki bara fossin heldur samanstendur einnig af umhverfinu og myndar þannig áfangastað sem hefur mikið aðdráttarafl. Til verndunar náttúruauðlindarinnar ætti þróun hans sem sjálfbær áfangastaður að vera í átt að virði frekar en magni. Lykilhugtök: Áfangastaður, þolmörk, sjálfbær þróun, sjálfbær ferðaþjónusta, auðlindstjórnun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hildigunnur Jörundsdóttir 1977-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25059
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25059

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hildigunnur Jörundsdóttir 1977-. Hengifoss - Gullfoss Austurlands : sjálfbær uppbygging og ábyrg auðlindastjórnun til framtíðar. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25059