Back to results

Hólar University College

Áhrif ferðaþjónustu á íbúaþróun á Vesturlandi 2010 - 2015

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur þessarar rannsóknar er að kanna áhrif ferðaþjónustunnar á íbúa- og byggðarþróun á Vesturlandi. Rannsóknin tekur mið af áhrifum ferðaþjónustu á tímabilinu 2010 – 2015. Markmið rannsóknarinnar er tvíþætt; að greina hvort vöxtur í ferðaþjónustu hafi haft áhrif á íbúaþróun á Vesturlandi á tímabilinu. Og á hvaða grunni aðkoma sveitarfélagsins er að þeim samfélagslegu þáttum sem tengjast uppbyggingu og væntingum. Rannsóknin tekur mið af þeim tölulegu upplýsingum sem liggja fyrir hjá Hagstofu Íslands, Ferðamálastofu og Markaðsstofu Vesturlands. Til að taka afstöðu til ofangreindra mála var rýnihópur skipaður sem samanstóð af þrem einstaklingum af Vesturlandi með innsýn og þekkingu í byggðamál og stjórnsýslu svæðisins. Niðurstöður þessar voru bornar saman við þekkingar – og kenningargrunn um byggðarþróun. Eftirfarandi kemur fram í niðurstöðum.  Mikill vöxtur og uppbygging hefur verið í ferðaþjónustu á svæðinu á tímabilinu.  Íbúum á Vesturlandi hefur fjölgað um 1% á tímabilinu, mest á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit þar sem ferðaþjónusta er minnst.  Íbúum fækkaði í Borgarbyggð, Grundarfjarðarbæ, Helgafellssveit, Snæfellsbæ og Dalabyggð á tímabilinu. En þar hefur vöxtur í ferðaþjónustu verið mestur í landshlutanum.  Mikill vöxtur í greininni hefur ekki skilað sér í auknum íbúafjölda og störfum fyrir nýja íbúa.  Sú ályktun er dregin að íbúum hefði fækkað meira á ákveðnum svæðum á Vesturlandi ef ekki hefði verið um vöxt í ferðaþjónustu að ræða á tímabilinu.  Sértekjustofn er nauðsynlegur til að standa undir væntingum um uppbyggingu á innviðum ferðaþjónustunnar til að ganga ekki á samfélagsleg þolmörk íbúa og náttúrunnar. Lykilorð: Ferðaþjónusta, íbúaþróun, byggðaþróun, stjórnsýsla sveitarfélaga, samfélagsleg áhrif.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðveig Eyglóardóttir 1976-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25057
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25057

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðveig Eyglóardóttir 1976-. Áhrif ferðaþjónustu á íbúaþróun á Vesturlandi 2010 - 2015. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25057