Back to results

Hólar University College

Stöðumat á skíðaferðaþjónustu á Íslandi : hvert stefnir?

Abstract

dc:description.abstract

Vöxtur ferðaþjónustunnar hefur verið gríðarlegur á undanförnum árum, þar af leiðandi eykst þörfin á fræðilegri þekkingu í ferðaþjónustugreininni mikið. Skíðaferðaþjónusta er ferðaþjónustugrein sem hefur verið að skapa sér aukinn sess hér á landi. Hún hefur þó fengið litla fræðilega umfjöllun sem gerir það að verkun að erfitt getur verið að skilja hugtakið skíðaferðaþjónusta. Í þessari ritgerð er farið yfir það hvernig skíðaferðaþjónustu á Íslandi er háttað og hvert hún stefnir. Tekin voru eigindleg viðtöl við forsvarsmenn fimm mismunandi fyrirtækja innan skíðaferðaþjónustunnar hér á landi. Svör viðmælenda voru borin saman og staðan könnuð með stöðumati. Í lok ritgerðar voru styrkleikar, veikleikar, ógnanir og tækifæri greind. Niðurstöður leiddu í ljós að hægt er að finna fjölbreytta skíðaferðaþjónustu hér á landi. Það er verið að gera marga góða hluti í greininni en það væri þó hægt að nýta fleiri möguleika. Þar mætti til dæmis horfa betur til þess að Íslendingar geta verið markhópur í skíðaferðaþjónstu og skíðasvæðin mættu marka sér skýrari stefnu í ferðaþjónustu. Erfitt var að greina frá því hvaða uppbygging væri á skíðaferðaþjónustumarkaðinum eftir að niðurstöður voru settar fram. Út frá rannsókninni má þó segja að helsta uppbyggingin væri sú að stefnt væri að því að betrumbæta aðstöðu gönguskíðasvæðisins við Fossavatn á Ísafirði og það ætti að koma af stað snjóframleiðslu á skíðasvæðinu í Bláfjöllum. Lykilorð: Skíðaferðaþjónusta, Íþróttaferðaþjónusta, ævintýraferðaþjónusta, Stöðumat, SVÓT – greining.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Steingerður Árnadóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/23203
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/23203

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Steingerður Árnadóttir 1991-. Stöðumat á skíðaferðaþjónustu á Íslandi : hvert stefnir?. 2015. http://hdl.handle.net/1946/23203