Hólar University College
Aðkoma hagsmunaaðila að hönnun áfangastaða í ferðaþjónustu : dæmi frá Reykjadal í Ölfusi
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar ritgerðar er að kanna hvort hönnun og skipulag áfangastaðarins Reykjadals uppfylli viðmið um þá hagsmuni sem hafa þarf í huga við uppbyggingu áfangastaða. Ennfremur að kanna hvort víðtækt samráð við hagsmunaaðila, í ákvarðanatöku um áfangastaði, sé til þess fallið að tryggja sjálfbærni þeirra. Gerð var eigindleg tilviksrannsókn þar sem fylgst var með tveimur hópum í göngu upp Reykjadal og í kjölfarið voru hóparnir fengnir í rýnihóp á hugarflugsfundi eftir gönguna þar sem leitast var við að fá viðhorf þátttakenda gagnvart áfangastaðnum. Loks voru tekin eigindleg viðtöl við ólíka hagsmunaaðila í því skyni að fá ítarlegri sjónarmið um hönnun og skipulag áfangastaðarins. Niðurstöður sýndu að nokkuð skortir á að tekið hafi verið tillit til nægilega breiðs hóps hagsmunaaðila við hönnun Reykjadals og að þörf er á ítarlegri rannsóknum til að hægt sé að skipuleggja áfangastaðinn til framtíðar með sjálfbærni hans í huga.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Harpa Guðmundsdóttir 1969-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/21636
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/21636