Back to results

Hólar University College

Leiðir til sjálfbærni í íslenskri ferðaþjónustu : gjaldtaka og aðgangsstýring

Abstract

dc:description.abstract

Megin markmið þessarar B.A. ritgerðar er að rannsaka hugtakið sjálfbærni í ferðaþjónustu og kanna ágæti gjaldtöku sem stjórntækis í íslenskri ferðaþjónustu, með því markmiði að byggja langtíma áætlun í ferðaþjónustu er miðar að sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda. Með skoðun á fyrirliggjandi rannsóknum er lagt upp með það markmið að bera saman hugmyndina um náttúrupassa sem leið til stýringar í ferðaþjónustu og aðferðir aðgangsstjórnunar á vernduðum svæðum og með hliðsjón af gjaldtökukerfum í þjóðgörðum Bandaríkjanna og Kanada. Fyrst er hugtakið sjálfbærni rannsakað og hvað skapar sjálfbæra stefnumörkun í ferðaþjónustu með skýra áætlun um aðgangsstýringu á ferðamannastöðum. Í öðru lagi eru aðferðir aðgangsstjórnunar rannsakaðar og dæmi frá þjóðgörðum Bandaríkjanna og Kanada skoðaðar með tilliti til aðgangsstjórnunar sem styðja vernd náttúruauðlinda. Í þriðja lagi eru helstu aðstæður á Íslandi kannaðar og hugmyndin um náttúrupassa skoðuð. Að lokum er gerður samanburður á þeim aðferðum sem fjallað hefur verið um á grundvelli sjálfbærra markmiða og umræða lögð fram um hvaða aðferðir gætu skilað árangri fyrir framtíð sjálfbærrar ferðamennsku á Íslandi. Megin niðurstöður þessarar rannsóknar er að gjaldtaka ein og sér er ólíkleg til að duga sem lausn við aðgangsstjórnunarvanda á ferðamannastöðum þar sem þolmörk eru rofin. Vel útfært aðgangsstjórnunarkerfi er fýsilegur kostur fyrir íslenska ferðaþjónustu í því augnamiði að viðhalda til framtíðar gæðum þeirrar upplifunar sem ferðamenn sækjast eftir og vernda náttúrulegar auðlindir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóhanna María Elena Matthíasdóttir 1975-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/21632
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/21632

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóhanna María Elena Matthíasdóttir 1975-. Leiðir til sjálfbærni í íslenskri ferðaþjónustu : gjaldtaka og aðgangsstýring. 2015. http://hdl.handle.net/1946/21632