Hólar University College
Þorskar á þurru landi og þorskar í sjó hér mæla sér mót : er pláss fyrir ferðaþjónustu við hlið útgerðar í Grundarfjarðarhöfn?
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á sambúð tveggja atvinnugreina í sjávarþorpi. Atvinnugreinarnar eru hinn gamalgróni sjávarútvegur og hin unga ferðaþjónusta. Sjávarþorpið sem um ræðir er Grundarfjörður á Snæfellsnesi, hjarta bæjarins slær við höfnina. Þar heilsast þessar tvær atvinnugreinar, þar fæddist sjávarþorpið og þar byggist upp framtíð samfélagsins sem nú er orðin bær, Grundarfjarðarbær. Landsbyggðin hefur átt undir högg að sækja undanfarin ár, undirstöðu atvinnugreinarnar hafa orðið fyrir skerðingum og tilfærslum sem hafa komið illa niður á íbúum og samfélögum. Eigindlegri rannsókn var beitt og tekin viðtöl við aðila frá báðum atvinnugreinunum og frá bæjaryfirvöldum, fólkið var valið með tilliti til starfa þeirra og reynslu. Helstu niðurstöður voru að sjávarútvegur og ferðaþjónusta eiga vel saman og er fátt því til fyrirstöðu að höfnin og hafnarsvæðið geti ekki borið báðar atvinnugreinarnar. Niðurstaða rannsóknarinnar er því að vilji er allt sem þarf. Stjórnvöld og íbúar þurfa að starfa saman að heill byggðarlagsins á sjálfbæran hátt. Auðlindirnar eru til staðar en það þarf sterka stefnu, vilja og samvinnu til þess að byggð blómstri og samfélagið allt hafi hag af. Lykilorð: Grundarfjörður, sjávarútvegur, ferðaþjónusta, skemmtiferðaskip, sjálfbærni.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Olga Sædís Aðalsteinsdóttir 1961-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/19934
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/19934