Abstract
dc:description.abstractLeiðsögumaður í trúartengdri ferðaþjónustu ber á margan hátt sömu ábyrgð og leiðsögðumaður í hverri annarri ferðaþjónustu. Ástæða þess er sú að ferðamenn í trúartengdri ferðaþjónustu upplifa oft dýpri og sterkari tilfinningar en í annars konar ferðaþjónustu, sem eykur mikilvægi virðingar og skilnings af hendi leiðsögumannsins. Þessar ályktanir eru dregnar af þeirri staðreynd að trú er afar persónulegt og viðkvæmt umfjöllunarefni. Þegar leiðsögumaðurinn er vel undirbúinn, efnislega vel að sér og hæfur til að gegna starfi sínu getur trúartengd ferðaþjónusta dýpkað trú ferðamannsins. Skýr dæmi um þetta má sjá í hinum svokölluðu pílagrímsferðum. Trúartengd ferðaþjónusta getur líka dýpkað skilning ferðamannsins á öðrum trúarbrögðum og þeim menningarheimum sem eru byggðir á þeim, þegar hann heimsækir helga staði sem tilheyra öðrum trúarbrögðum en hann tilheyrir og/eða þekkir. Þegar skilningur á öðrum trúarbrögðum eykst eru allar líkur á að umburðarlyndi gagnvart þeim fylgi í kjölfarið. Trúarbrögð eru ein helsta orsök stríða og annarra deilna í heiminum í dag. Hæfur leiðsögumaður í trúartengdri ferðaþjónustu getur því spilað lykilhlutverk í að stuðla að friði og jákvæðri hnattvæðingu með því að fræða ferðamenn og hjálpa þeim að skilja og bera virðingu fyrir annars konar hugmyndafræði. Á sama tíma getur óhæfur leiðsögumaður ollið miklu tjóni með því að sýna trúarbragð eða venjur innan þess í röngu ljósi. Auk þess að sinna upplýsingagjöf og menntunarhlutverki er mikilvægt að leiðsögumaður í trúartengdri ferðaþjónustu myndi góð tengsl við ferðamennina í hópnum, geti metið þær oft sterku tilfinningar sem ferðamennirnir upplifa í ferðinni og sýni skoðunum hvers einstaklings virðingu. Í þessari ritgerð verður eigindlegri aðferðafræði beitt til að freista þess að svara þeirri spurningu hvar helsta ábyrgð leiðsögumanns liggur í trúartengdri ferðaþjónustu, og hvernig hún er öðruvísi en í annars konar ferðaþjónustu. Lykilorð: Leiðsögumaður, Trúartengd ferðaþjónusta, Fræðsla, Umburðarlyndi og Virðing.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Tinna Rós Steinsdóttir 1986-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 2Rights
- Language dc:language.iso
- en
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/18749
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/18749