Back to results

Hólar University College

Ferðaþjónusta í Sveitarfélaginu Árborg: Staða stefnumótunar ferðamála í sveitarfélaginu

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi er 12 eininga lokaverkefni og hluti af Baccalaureum Artium gráðu í Ferðamálafræði við Háskólann á Hólum. Markmiðið með ritgerðinni er að kanna stöðu ferðaþjónustu í Sveitarfélaginu Árborg, stefnumótun og eins hvernig söguleg arfleifð svæðisins er nýtt í ferðaþjónustu. Sveitarfélagið Árborg er vel staðsett í nálægð við höfuðborgarsvæðið og helstu náttúruperlur Suðurlands en hefur þó ekki náð að festa sig í sessi sem ferðamannastaður í þeim mikla uppgangi sem er að eiga sér stað í ferðaþjónustu á Íslandi. Mikil umferð liggur í gegnum sveitarfélagið þar sem þjóðvegur 1 liggur í gegnum Selfoss, stærsta þéttbýliskjarna sveitarfélagsins, þá er ýmsa þjónustu fyrir ferðamenn að finna í bænum, enda er Selfoss þjónustkjarni Suðurlands. Sveitarfélagið hefur upp á margt annað að bjóða en verslanir, gistingu og veitingastaði. Þéttbýliskjarnarnir þrír, Selfoss, Eyrarbakki og Stokkseyri eru landfræðilega mikilvægir með tilliti til samgangna og verslunar fyrr á öldum og svo er enn, þá staðreynd er svo hægt að tengja með beinum hætti við menningarsögulegt mikilvægi staðanna og mismunandi þýðingu þeirra fyrir sunnlenskt samfélag þá og nú. Í rannsókninni var notast við eigindlega rannsóknaraðferð þar sem fyrirliggjandi gögn voru notuð ásamt viðtölum við tvo aðila sem voru valdir með markmiðsúrtaki. Unnið var með framboðsmódel fræðimannsins Gunn (2002) til þess að varpa ljósi á það hvað það er sem sveitarfélagið þurfi helst að huga að í uppbyggingu ferðaþjónustu. Þá var skipulagsrit fyrir gerð ferðamálastefnu skoðað með tilliti til þróunar stefnumótunar hjá sveitarstjórn. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að mikilvægar grunnstoðir til ferðaþjónustu eru til staðar en vöntun er á góðri stefnumótun til að hægt sé að þróa áfangastaðinn Árborg áfram og auka aðdráttarafl hans og ímynd. Lykilorð: stefnumótun, stefnumótun í ferðaþjónustu, Sveitarfélagið Árborg, menningartengd ferðaþjónusta, áfangastaður.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jónína Ásta Ölversdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/18745
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/18745

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jónína Ásta Ölversdóttir 1984-. Ferðaþjónusta í Sveitarfélaginu Árborg: Staða stefnumótunar ferðamála í sveitarfélaginu. 2014. http://hdl.handle.net/1946/18745