Back to results

Hólar University College

Klasasamstarf ferðaþjónustuaðila innan Kötlu jarðvangs : góð leið til að stuðla að sjálfbærri efnahagslegri þróun?

Abstract

dc:description.abstract

Ferðaþjónusta á Íslandi er að verða ein stærsta atvinnugreinin hér á landi. Ferðamönnum fjölgar stöðugt og samkeppni í ferðaþjónustu er mikil. Árið 2010 var stofnaður fyrsti jarðvangurinn á Íslandi en hann nær yfir þrjú sveitarfélög á suðurlandi, Rangárþing Eystra, Mýrdalshrepp og Skaftárhrepp. Jarðvangurinn fékk nafnið Katla jarðvangur. Meginmarkmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á hvort klasasamstarf ferðaþjónustufyrirtækja innan Kötlu jarðvangs hafi áhrif á sjálfbæra efnahagslega þróun innan svæðisins og hvort það stuðli að samkeppnishæfni. Stuðst var við hugmyndafræði Dr. Michael E. Porter um klasa og samkeppnishæfni. Notast var við megindlega rannsóknaraðferð við vinnslu rannsóknarinnar og var rafræn spurningakönnun send út til ferðaþjónustufyrirtækja innan jarðvangsins. Niðurstöður leiddu í ljós að Katla jarðvangur hefur mikið til brunns að bera sem vel samkeppnishæft svæði miðað við önnur sambærileg svæði hér á landi. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu einnig í ljós að ferðaþjónustufyrirtæki innan Kötlu jarðvangs bera frekar hag af klasasamstarfi og samkeppni í þeirra nærumhverfi kemur ekki niður á rekstri fyrirtækjanna. Lykilorð: Ferðaþjónusta, Klasar, Samkeppnishæfni, Sjálfbær efnahagsleg þróun, Katla jarðvangur.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Harpa Íshólm Ólafsdóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/18742
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/18742

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Harpa Íshólm Ólafsdóttir 1987-. Klasasamstarf ferðaþjónustuaðila innan Kötlu jarðvangs : góð leið til að stuðla að sjálfbærri efnahagslegri þróun?. 2014. http://hdl.handle.net/1946/18742