Back to results

Hólar University College

Könnun á fóðrun kynbótahrossa á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi greinir frá niðurstöðum úr könnun á fóðrun kynbótahrossa á Íslandi. Könnunin var gerð á tuttugu og þremur ræktunarbúum í mars 2014 og fengust upplýsingar um fóðrun á 85 kynbótahrossum. Markmið þessarar ritgerðar var að kanna fóðrun kynbótahrossa á Íslandi, hvaða fóður er gefið og á hvaða forsendum er verið að fóðra. Einnig að kanna hvort fóðrun í kringum kynbótasýningar sé frábrugðin fóðrun á undirbúningstímanum. Helstu niðurstöður könnunarinnar voru: fóðrunin er í öllum tilfellum einstaklingsbundin, byggir á holdastigi og yfirleitt er ekki notast við heyefnagreiningu. Algengasta gróffóðurstegundin var rúlluhey. Helmingur búanna gaf snemmslegið hey og hinn helmingurinn gaf síðslegið hey en flest búanna tóku tillit til orkunnar í innihaldi heysins og gáfu steinefna- og vítamínblöndu til að uppfylla þarfir hrossanna fyrir bætiefni. Algengast var að þátttakendur giskuðu á það heymagn sem var gefið en miðað við niðurstöður könnunarinnar þá var stóðhestum gefið 8,2 kg á dag af heyi en hryssum 6,4 kg og marktækur munur var á milli kynjanna hvað varðar gefið heymagn. Flest hrossanna voru þjálfuð fimm sinnum í viku í 30 mínútur í hvert skipti og viðmælendur álitu þjálfunarálagið vera í meðallagi erfitt/létt. Það voru 70% hrossanna sem fengu kjarnfóður og stóðhestar fengu að meðaltali 1,3 kg á dag en hryssurnar 0,9 kg á dag og marktækur munur var á kjarnfóðurgjöf milli kynja. Í flestum tilfellum var fóðruninni breytt einni til tveimur vikum fyrir kynbótasýningu og þá með aukningu í kjarnfóðurgjöf en minnkun í gróffóðurgjöf. Á sýningardaginn var gjöf oftast óbreytt m.v. venjulega fóðrun en hluti búanna færði til fóðrun eftir sýningartíma hestsins. Meginályktanir eru þær að fóðrun á kynbótahrossum virðist byggð á tilfinningu og sjónrænu mati þátttakenda en miðað við útlit og mat á holdastigi hrossanna þá voru þau vel fóðruð. Tækifæri liggja í aukinni efnagreiningu á heyi til að geta náð enn betri árangri í fóðrun sem ætti að skila sér í betri afköstum og vellíðan hrossanna. Heyefnagreining virðist vera vannýtt tól á meðal ræktunarbúa á Íslandi. Höfundur telur þörf á frekari rannsóknum á sviði fóðrunar kynbótahrossa til þess að hægt sé að stuðla að enn betri uppbyggingu á hrossum sem eiga að afkasta miklu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Elin Margareta B Moqvist 1983-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/18682
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/18682

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elin Margareta B Moqvist 1983-. Könnun á fóðrun kynbótahrossa á Íslandi. 2014. http://hdl.handle.net/1946/18682