Hólar University College
Pílagrímsferðir kristinna manna : hin helga upplifun eða venjuleg ferðamennska
Abstract
dc:description.abstractTrúarbrögð hafa verið hvati ferðalaga frá örófi alda og hefur umfang trúarbragðaferðamennsku aukist mikið undanfarin ár. Pílagrímsferðir eru eitt elsta form ferðamennsku og eru pílagrímsferðir kristinna manna þar engin undantekning. Í þessari ritgerð er leitast við að varpa ljósi á pílagrímsferðir kristinna manna og hvernig þær tengjast ferðamennsku. Fjórar spurningar voru lagðar fram til að meta þessi tengsl. Reynt var að varpa ljósi á hvað er líkt og ólíkt með pílagrímsferðum nútíðar og fortíðar og skoðað hvort tilgangur slíkra ferða hafi breyst í gegnum tíðina. Áfangastaður pílagrímans er helgur staður og því var kannað hvort að helgur staður sé ferðamannastaður og hvort pílagríminn sé ferðamaður eða ferðamaðurinn pílagrími. Við þessa rannsókn var eingöngu unnið út frá gögnum sem þegar lágu fyrir en engum gögnum var sérstaklega safnað vegna hennar. Helstu niðurstöður sýna að ýmislegt er líkt með pílagrímsferðum nútíðar og fortíðar en þó er meira sem er ólíkt. Tilgangur ferða er að sumu leyti sá sami í nútíð og fortíð en munurinn liggur þó mestur í skynjun upplifunar. Helgur staður er greinilega ferðamannastaður og pílagrími er ferðamaður en hvort að ferðamaður sé pílagrími er umdeilanlegra en hallast er að því að það sé einstaklingsbundið.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Guðrún Karólína Pétursdóttir 1968-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 2Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/16750
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/16750