Back to results

Hólar University College

Mikilvægi nýsköpunar í ferðaþjónustu

Abstract

dc:description.abstract

Lokaverkefni þetta er tvískipt. Annars vegar er fræðilegur hluti, en viðfangsefni hans er nýsköpun í ferðaþjónustu og mikilvægi hennar fyrir aðila innan greinarinnar, upplifun ferðamanna á afþreyingu og áhrif nýsköpunar á upplifun. Hins vegar er rannsóknarhluti verkefnisins, sem felst í gerð viðskiptaáætlunar fyrir þá viðskiptahugmynd að fara með ferðamenn í tvær úteyjar í Vestmannaeyjum. Mikið hefur verið fjallað um nýsköpun í hinum ýmsu geirum undanfarin ár og ber þá oft hæst í umræðunni einhvers konar tækninýjungar. Nýsköpun getur hins vegar verið af ýmsum toga og flest verðum við mest vör við það þegar ný þjónusta eða nýjar vörur koma á markað. En nýsköpun getur einnig átt sér stað bak við tjöldin, t.d. í stjórnun eða ferlum. Niðurstöður benda til að mikilvægt sé fyrir aðila í ferðaþjónustu að stunda nýsköpun að einhverju marki annars er hætta á að viðskiptavinurinn snúi sér eitthvað annað. Nýsköpun getur þannig verið nauðsynleg til að tryggja samkeppnishæfni áfangastaðar eða fyrirtækis, m.a. með því að halda í núverandi viðskiptavini, afla nýrra og auka upplifun gesta. Niðurstöður viðskiptaáætlunarinnar sýna að raunhæft og hagkvæmt er að fara af stað með ferðir í úteyjar í Vestmannaeyjum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Brynja Hlín Ágústsdóttir 1976-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/16743
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/16743

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Brynja Hlín Ágústsdóttir 1976-. Mikilvægi nýsköpunar í ferðaþjónustu. 2013. http://hdl.handle.net/1946/16743