Back to results

Hólar University College

Íslenskar torfbyggingar, heimsminjaskrá og sjálfbær ferðaþjónusta

Abstract

dc:description.abstract

Samningurinn um verndun menningar- og náttúruarfleifðar heimsins var samþykktur á allsherjarþingi UNESCO þann 16. nóvember 1972 fyrir40 árum síðan. Aðildarríki samningsins taka höndum saman um að vernda og hlúa að arfleifð heimsins, lýsa yfir sameiginlegri ábyrgð og skuldbinda sig til að varðveita arfleifðina fyrir komandi kynslóðir. Að mati UNESCO hafa staðir á heimsminjaskrá mikið aðdráttarafl og eru meðal fjölsóttustu ferðamannastaða heimsins. Telja samtökin að ferðaþjónusta sem rekin er á grundvelli sjálfbærrar þróunar hafi möguleika til tekjuöflunar sem gagnast getur við verndun heimsminjastaða, lagt sitt af mörkum til að bæta lífskjör íbúa nærsamfélagsins ásamt því að auka vitund gesta um gildi minjanna. Íslenskar torfbyggingar ásamt tengdu búsetulandslagi eru á yfirlitsskrá sem fyrirhuguð tilnefning á heimsminjaskrá. Yfirlitsskráin mótar stefnu innan hvers ríkis með hliðsjón af verndun, kynningarstarfi og ferðaþjónustu. UNESCO hvetur aðildarríki samningsins til að vinna skrána með þátttöku hagsmunaaðila eins og sveitastjórna, nærsamfélagsins og frjálsra félagasamtaka. Torfbyggingarnar eru kórónan í íslenskum byggingararfi, lýsa menningarlegum gildum samfélagsins ásamt félags- og tæknilegum breytingum sem átt hafa sér stað í gegnum aldirnar. Því er ljóst að þessar byggingar eru áþreifanlegar minjar um óáþreifanleg menningarverðmæti sem liggja í þeirri verkþekkingu sem skapaði þau og ástæða er til að varðveita.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Dagmar Svanhvít Ingvadóttir 1962-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/15903
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/15903

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Dagmar Svanhvít Ingvadóttir 1962-. Íslenskar torfbyggingar, heimsminjaskrá og sjálfbær ferðaþjónusta. 2013. http://hdl.handle.net/1946/15903