Hólar University College
Flow í hestamennsku : eigindleg rannsókn á flow í íslenskri hestamennsku
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar var að athuga hvernig kenning Csiskzentmihalyi um flæði ætti við um íslenska hestamennsku. Kannað var flæði meðal áhugamanna, flæði í þjálfun og keppni, flæði í kennslu, og hugsanleg neikvæð áhrif flæðis. Eigindlegri aðferðafræði var beitt og gögnum var safnað með hálfstöðluðum viðtölum. Sex viðmælendum var skipt í þrjá hópa: Í fyrsta hópnum voru nemendur á öðru ári í Hólaskóla, annar hópurinn samanstóð af kennurum sem hafa kennt á Hólum til langs tíma, og í þriðja hópnum voru atvinnuknapar/keppnismenn. Gögnin voru greind með umritun og yfirlestri á viðtölum. Niðurstöðurnar benda til þess að fjölskyldubakgrunnur í hestamennsku, eða náin tengsl við aðra knapa auki líkur á flæði í hestamennsku. Við þjálfun hesta upplifðu viðmælendur í rannsókninni mörg einkenni flæðis, þeir greindu m.a. frá mikilvægi þess að jafnvægi sé milli þyngdar áskorunnar og þeirrar færni sem viðkomandi býr yfir, hvernig athafnir og vitund renna í eitt, skýrum markmiðum, mikilli einbeitingu og sjálfstrausti og að lokum hvernig þjálfunin sjálf væri einskonar umbun. Aukið álag svo sem í keppni virðist ekki hafa truflandi áhrif á flæði hjá flestum viðmælendum. Flæði kemur oft fram í reiðtímum og margir viðmælendanna sögðust greina það þegar kennari þeirra upplifir flæði. Rannsóknin vakti spurningar þess efnis hvort flæði í hestamennsku hefði hugsanleg neikvæð áhrif á einkalíf fólks. Hestmennska er ákveðinn lífstíll en hestamenn eru ekki endilega háðir henni. Það er ljóst að orðaforða til að skilgreina flæði á íslensku þarf að þróa betur. Að hve miklu leyti þessir atvinnu-hestamenn upplifa flæði á margskonar vettvangi er aðdáunarvert, en úrtakið var ekki nógu stórt til þess að hægt væri að alhæfa niðurstöðurnar yfir á aðra hestamenn. Tilvist flæðis meðal atvinnuknapa í hinum ýmsu aðstæðum var einnig könnuð og benda niðurstöður til þess að flæði spili mikilvægt hlutverk í hestamennsku.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Brandt, Carrie Lyons, 1992-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- en
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/15803
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/15803