Back to results

Hólar University College

Allt í lag fyrir Fiskidag : samfélagslegur þrýstingur eða sjálfboðin vinna?

Abstract

dc:description.abstract

Bæjarhátíðin Fiskidagurinn mikli hefur verið haldin hátíðleg í Dalvíkurbyggð frá árinu 2001. Þátttaka sjálfboðaliða úr Dalvíkurbyggð er meginforsenda þess að hægt hefur verið að halda hátíðina og viðburði tengda henni í öll þessi ár, en árið 2012 voru vel yfir tvö hundruð manns að störfum fyrir Fiskidaginn mikla. Markmið þessarar ritgerðar var að kanna viðhorf sjálfboðaliða sem starfa við Fiskidaginn mikla í Dalvíkurbyggð. Tekin voru hálf opin viðtöl við sex aðila sem eiga það sameiginlegt að hafa starfað fyrir Fiskidaginn í mörg ár, ýmist á vegum félagasamtaka eða sem einstaklingar. Að auki var tekið viðtal við formann hestamannfélagsins Hrings en félagið hefur milligöngu um öflun sjálfboðaliða. Ennfremur var gagna aflað í skjalasafni Fiskidagins mikla. Helstu niðurstöður voru þær að sjálfboðaliðar væru almennt sáttir við störf sín í þágu Fiskidagsins mikla og vilja með engu móti missa af þeim. Megin ástæða fyrir þátttöku sjálfboðaliðanna er persónulegur áhugi á hátíðinni. Sjálfboðaliðunum finnst hún þess virði að taka þátt í og gera það á eigin forsendum og telja að ekki sé um samfélagslegan þrýsting að ræða. Lykilhugtök: viðburðir, bæjarhátíðir, sjálfboðaliðar, Fiskidagurinn mikli, Dalvík.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Valgerður Björg Stefánsdóttir 1967-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/15166
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/15166

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Valgerður Björg Stefánsdóttir 1967-. Allt í lag fyrir Fiskidag : samfélagslegur þrýstingur eða sjálfboðin vinna?. 2013. http://hdl.handle.net/1946/15166