Back to results

Hólar University College

„Hvar er þjóðgarðurinn?“ : þolmörk innviða í þjóðgarðinum Snæfellsjökli

Abstract

dc:description.abstract

Uppbygging innviða á fjölförnum ferðamannastöðum er forsenda þess að hægt sé að taka á móti þeim ferðamönnum sem ferðast um Ísland ár hvert og þar er þjóðgarðurinn Snæfellsjökull engin undantekning. Það er mikilvægt að stjórnvöld vinni að uppbyggingu þjóðgarða með það að leiðarljósi að verndun og nýting svæða fari saman. Því þarf öll uppbygging innviða að miðast við að vernda náttúru og að uppfylla þær þarfir sem ferðamaðurinn hefur. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á hvort þolmörkum innviða í þjóðgarðinum Snæfellsjökli sé náð. Með rannsókninni er reynt að átta sig á því hvort uppbygging innviða og skipulag sé í takt við þá ferðamennsku sem þróast hefur í þjóðgarðinum. Rannsóknarsvæðið er fyrst og fremst þjóðgarðurinn Snæfellsjökull en farið er út fyrir þau mörk þegar fjallað er um, samgöngur, gistingu og veitingar. Helstu niðurstöður eru þær að þolmörkum innviða sé víða náð og nauðsynlegt er að bregðast hratt við til að þjóðgarðurinn uppfylli þær kröfur sem til hans eru gerðar. Æskileg framtíðaruppbygging innviða í þjóðgarðinum Snæfellsjökli ætti að vera sú að tekið sé tillit til náttúrunnar í hvívetna og einnig að þjóðgarðurinn þjóni öllum gestum sem hann heimsækja á viðunandi hátt. Lykilorð: Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull, þolmörk, innviðir, þjóðgarður, ferðamenn.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Lárus Kjartansson 1978-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/15158
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/15158

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Lárus Kjartansson 1978-. „Hvar er þjóðgarðurinn?“ : þolmörk innviða í þjóðgarðinum Snæfellsjökli. 2013. http://hdl.handle.net/1946/15158