Back to results

Hólar University College

Strandarkirkja : segull við ysta haf

Abstract

dc:description.abstract

Strandarkirkja í Selvogi hefur að geyma áhrifaríka sögu, sterka ímynd og mikið aðdráttarafl og hefur sérstöðu meðal kirkna vegna áheita. Hún stendur ein í kyrrðinni við ysta haf og dregur til sín fólk af ýmsum þjóðernum og frá ólíkum menningarheimum. Hún er tákngervingur fyrir staðinn, helgina, menninguna, arfleifðina og umhverfið og er viðkvæm auðlind sem þarf að fara varlega með ef farið verður í uppbyggingu ferðaþjónustu. Leitað verður svara við þeim spurningum hvort Strandarkirkja sé áfangastaður fyrir alla ferðamenn eða afmarkaðan hóp og hve mikilvæg er hún fyrir svæðið í heild. Hún gegnir margvíslegum hlutverkum sem sóknarkirkja og áheitakirkja, sem arfleifð og sögustaður og er kirkja sem fólki finnst það þurfa að hafa komið í. Umferð þangað hefur aukist eftir að Suðurstrandarvegurinn var opnaður og því er ástæða til að fylgjast með þróuninni svo hægt verði að bregðast við með einhverjum hætti ef þurfa þykir. Tekin voru viðtöl við fjóra einstaklinga sem tengjast kirkjunni á ólíkan hátt og voru þeir spurðir um upplifun þeirra af Strandarkirkju og viðhorf þeirra meðal annars til vaxandi ferðamannastraums á staðinn þar sem aðdráttaraflið er friður og ró. Lykilorð: Strandarkirkja áfangastaður áheit menning arfleifð

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Elín Finnbogadóttir 1965-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/15145
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/15145

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elín Finnbogadóttir 1965-. Strandarkirkja : segull við ysta haf. 2013. http://hdl.handle.net/1946/15145