Back to results

Hólar University College

Sveitarfélagið Garður sem áfangastaður ferðamanna

Abstract

dc:description.abstract

Ferðaþjónusta í dreifbýli hefur farið vaxandi síðustu ár og eru litlu bæjarfélögin á landsbyggðinni orðin áhugaverðir áfangastaðir fyrir ferðamenn en þar spilar náttúra og menning stóran þátt í upplifun ferðamanna. Í Sveitarfélaginu Garði sem staðsett er á Suðurnesjunum hefur lítil sem engin ferðaþjónustu verið á síðustu árum. Vitundarvakning er þó á meðal bæjarbúa og er mikill áhugi á því að byggja upp öfluga þjónustu fyrir ferðamenn. Meginmarkmið með þessari rannsókn var að athuga hvort Sveitarfélagið Garður gæti orðið áhugaverður áfangastaður fyrir ferðamenn og hvort það er tilbúið að taka á móti auknum fjölda ferðamanna. Í rannsókninni var notast við eigindlegar rannsóknaraðferðir þar sem fyrirliggjandi gögn voru nýtt ásamt hálfstýrðum viðtölum. Unnið var með lífsferilslíkan áfangastaðar eftir fræðimanninn R.W. Butler, til að átta sig á hvaða stigi sveitarfélagið er í uppbyggingunni og hvert það eigi að stefna. Einnig var stuðst við framboðsmódel C. Gunn, til að átta sig á því hvaða þjónustu sveitarfélagið þarf að hafa til að geta tekið á móti auknum fjölda ferðamanna. Niðurstöður sýna fram á að sveitarfélagið Garður er á byrjunarreit og á langt í land með að ná tilsettum árangri og þarf þátttaka bæjarbúa og samvinna við nágrannasveitarfélögin vera góð allt frá hugmyndavinnu að framkvæmd.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Oddný Kristrún Ásgeirsdóttir 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/13845
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/13845

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Oddný Kristrún Ásgeirsdóttir 1981-. Sveitarfélagið Garður sem áfangastaður ferðamanna. 2013. http://hdl.handle.net/1946/13845