Abstract
dc:description.abstractMeð tilliti til aðgengis og staðsetningar er Reykjadalur í Suður Þingeyjarsýslu vel settur, um hann liggur þjóðvegur númer eitt og sem kvíslast til þriggja átta í miðjum dal. Lengstum hefur straumur ferðamanna legið gegnum dalinn án viðkomu nema hvað ferðamenn geta fengið gistingu á þremur stöðum. Íþróttamannvirki eru á svæðinu og góðir möguleikar til útivistar. Aðstaða í dalnum er því góð en í raun vantar aðdráttaraflið sem togar ferðamenn að staðnum til dvalar. Umhverfið í Reykjadal hentar vel til fjölskylduvænnar ferðaþjónustu og sé horft til þess að á síðustu árum eru æ háværari raddir um þörf á aukinni samveru allrar fjölskyldunnar sem og útivist og hreyfingu fyrir börn; þá hefur hugmyndin um að byggja upp aðdráttarafl með úrvals aðstöðu skotið upp kollinum. Könnun var gerð meðal hagsmunaaðila, fundað með rýnihópi, viðtöl voru tekin og símakönnun gerð meðal almennra íbúa til þess arna, þá með fjölskyldu væna ferðaþjónustu í forgrunni. Niðurstöður sýndu að sterkur vilji er og samhljómur meðal heimamanna að vinna ferðaþjónustunni framgang innan sveitarinnar og marka sérstöðuna út frá þessari hugmynd.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hólmfríður Sólveig Haraldsdóttir 1962-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/13397
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/13397