Hólar University College
Vinir og vandamenn : umfang og efnahagsleg áhrif VFR ferðamanna á Vopnafirði
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð eru skoðuð áhrif og umfang VFR ferðamanna (visiting friends and relatives) á Vopnafirði. Rannsóknin byggist á íbúakönnun sem póstsend var á 224 heimili haustið 2011. Könnunin byggir að nokkru leyti á íbúakönnun Backer (2010b) en með því móti var ætlunin að skapa möguleika á samanburði þar sem rannsóknir á þessu sviði munu ekki hafa farið fram fyrr á Íslandi. Unnið var úr gögnum með tölfræðilegum hætti. Rannsóknarspurningar snérust um áhrif VFR gesta á hegðun, eyðslu og útgjöld gestgjafanna og dvalarlengd VFR gesta. Helstu niðurstöður eru þær að allir svarendur sem skiluðu gildri, útfylltri könnun höfðu tekið á móti VFR gestum á síðustu 12 mánuðum. Stærsti hluti gestgjafa hafði tekið þátt í ferðamannahegðun af einhverju tagi með gestum sínum. Þá eru sterkar vísbendingar um að koma gestanna valdi gestgjöfunum útgjöldum umfram venju þó ákveðnir veikleikar í gögnum komi í veg fyrir að unnt sé að kveða á um hversu mikil þau eru. Loks er svo að sjá að tiltölulega lítill munur sé á dvalarlengd VFR gesta og annarra miðað við ferðamannakönnun frá 2010. Komutími VFR gestanna fellur að nokkru að háönn en þó virðast hún standa lengur fram á haustið og byrja fyrr.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ólafur Björgvin Valgeirsson 1955-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/13388
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/13388