Hólar University College
Breytingar á þykkt langa bakvöðva íslenskra hesta í gegnum frumtamningu og grunnþjálfun
Abstract
dc:description.abstractViðfangsefni verkefnisins var að kanna hvort og hvernig þykkt langa bakvöðvans breytist hjá íslenskum hestum í gegnum frumtamningar- og grunnþjálfunartímabilið. Rannsóknin fór fram við Háskólann á Hólum. Notaðir voru 38 hestar sem komu í tamningu á Hólum og voru tamin undir leiðsögn kennara af nemendum skólans á öðru ári í B.Sc. námi í reiðmennsku og reiðkennslu. Hestarnir voru á aldrinum fjögurra til sex vetra en stærsti hópurinn, eða 25 hross, voru fjögurra vetra. Þykkt langa bakvöðvans var mæld með sónartæki á fjórum stöðum. Milli 10. og 11. rifbeins og milli 17. og 18. rifbeins, bæði hægra og vinstra megin við hryggsúluna. Sónarmælingar voru gerðar tvisvar sinnum; í upphafi og í lok frumtamningar. Einnig var brjóstummál hestanna mælt í upphafi og lok frumtamingar og í lok grunnþjálfunar. Löngu baköðvarnir stækkuðu á frumtamningartímabilinu en þykktaraukningin var ekki marktæk í heild sinni. Munurinn á vöðvaþykkt milli hægri og vinstri hliðar reyndist ekki vera marktækur í heild sinni en var marktækur í fyrstu mælingum á fremri mælistað (p=0,0327). Engin fylgni reyndist vera milli brjóstummáls og breytinga á vöðvaþykkt langa bakvöðvans.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Carmen Kull 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/13291
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/13291