Back to results

Bifröst University

Hvernig birtast vísbendingar um gæði þjónustu, heilsufar og þjónustuþarfir í niðurstöðum RAI-HC hjá heimaþjónustu Reykjavíkur árin 2005-2009

Abstract

dc:description.abstract

Áhersla er lögð á að aldraðir dvelji heima sem lengst. Markmið félagslegrar heimaþjónustu er að efla fólk til sjálfsbjargar og gera því kleift að búa sem lengst í heimahúsi við sem eðlilegastar aðstæður. Markmið heimahjúkrunar er að veita einstaklingshæfða, markvissa, árangursríka og faglega heimahjúkrun sem gerir þeim sem þjónustunnar njóta kleift að búa heima við sem eðlilegastar aðstæður þrátt fyrir veikindi eða heilsubrest. Fjöldi aldraðra fer vaxandi og því aukast kröfur til heilbrigðis- og félagsþjónustu að finna leiðir til að annast þá sem glíma við heilsubrest, hagkvæmar leiðir sem einnig eru gæðaþjónusta. Lög um málefni aldraðra hafa það að markmiði að aldraðir geti búið sem lengst heima og notið til þess þann stuðning sem þarf. Í slíkum aðstæðum er mikilvægt að hafa mælitæki sem greinir þarfir sjúkra aldraðra og metur hvernig þeim þörfum er mætt sem og skilvirkni þjónustunnar. Í aðdraganda sameiningar félagslegu heimaþjónustunnar og heimahjúkrunar var ákveðið að innleiða RAI-HC mælitækið sem er mælitæki fyrir félags- og heilbrigðisþjónustu í heimahúsum. Með því er hægt að meta aðstæður og heilsufar skjólstæðinga og skipuleggja þjónustu samkvæmt mati og nýta gæðavísa mælitækisins til þess að fá vísbendingar um gæði þjónustunnar. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á heilsufar skjólstæðinga heimaþjónustunnar og vísbendingar um gæði hjá Heimaþjónustu Reykjavíkur árin 2005-2009 með notkun RAI-HC gæðavísa. Með því að fá upplýsingar um heilsufar, aðstæður og hjúkrunarþarfir skjólstæðinga Heimaþjónustu Reykjavíkur er hægt að leggja mat á vísbendingar um gæði hjúkrunar og skipulagningu þjónustunnar. Slíkar niðurstöður eru mikilvægar stjórnendum því með þeim er hægt að leggja mat á þá faglegu þjónustu sem veitt er. Gæðavísar gefa starfsfólki og stjórnendum vísbendingar um hvað sé vel gert og hvað megi betur fara og því er hægt að nota þá til að mæla árangur þjónustunnar og setja af stað umbótaverkefni. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að ýmislegt í aðstæðum og heilsufari skjólstæðinga Heimaþjónustunnar árin 2005-2009 þarf nánari skoðun. Það sem skjólstæðingar glímdu við var einmanaleiki, depurð, þunglyndi, vonleysi, kvíði, óöryggi, svimi og óstöðugt göngulag. Verkir voru algengir og einnig byltur. Stór hluti skjólstæðinga fór ekki í augnskoðun og heyrnarmælingu en talsverður fjöldi lagðist inn á spítala. Þeir gæðavísar sem mældust með hæstu tíðni á milli áranna 2005-2009 voru: ADL færni/endurhæfingar - möguleiki og engin meðferð, tíðni sjúkrahúsinnlagna, tíðni ófullnægjandi verkjastillingar, tíðni byltna, tíðni tilfella þar sem viðkomandi fékk ekki bólusetningu og tíðni félagslegrar einangrunar. Tíðni gæðavísa milli aldurshópa sem mældust með tölfræðilega marktækan mun voru: Tíðni vökvaskorts, tíðni félagslegrar einangrunar, tíðni ófullnægjandi verkjastillingar og tíðni sjúkrahúsinnlagna. Tíðni gæðavísa milli kynja sem mældust með tölfræðilega marktækan mun voru: Tíðni þyngdartaps, tíðni vökvaskorts, tíðni vanrækslu/ofbeldi/misbeitingar og tíðni tilfella þar sem viðkomandi fékk ekki bólusetningu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ragna Lilja Garðarsdóttir 1972-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/9834
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/9834

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ragna Lilja Garðarsdóttir 1972-. Hvernig birtast vísbendingar um gæði þjónustu, heilsufar og þjónustuþarfir í niðurstöðum RAI-HC hjá heimaþjónustu Reykjavíkur árin 2005-2009. 2011. http://hdl.handle.net/1946/9834