Back to results

Bifröst University

Um siðferðilegt réttmæti hugmyndarinnar um réttindi náttúrunnar

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessari er ætlað að athuga siðferðilegt réttmæti hugmyndarinnar um réttindi náttúrunnar. Farið verður yfir réttindi náttúrunnar eins og þau birtast í stjórnarskrá Ecuador, en árið 2008 var það fyrst allra landa til þess að veita náttúrunni stjórnarskrárvarin réttindi. Litið verður á kenningar um réttindi og viðföng siðferðis. Þá verður fjallað um vistfræði og kenningar náttúrusiðfræðinnar, en segja má að fræðigreinarnar vistfræði og siðfræði hafi sameinast svo úr varð ný fræðigrein, siðfræði náttúrunnar. Að lokum verður gerð tilraun til þess að meta hvort til álita komi að binda réttindi náttúrunnar í fyrirhugaða nýja stjórnarskrá Íslendinga. Niðurstaða ritgerðarhöfundar er sú að hugmyndin um réttindi náttúrunnar sé siðferðilega réttmæt. Ennfremur er það niðurstaða höfundar að vel komi til álita að hafa réttindi náttúrunnar í huga við ritun nýrrar stjórnarskrár.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Árný Björk Sigurðardóttir 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/9804
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/9804

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Árný Björk Sigurðardóttir 1982-. Um siðferðilegt réttmæti hugmyndarinnar um réttindi náttúrunnar. 2011. http://hdl.handle.net/1946/9804