Back to results

Bifröst University

Gagnaver : samkeppnishæfni Íslands

Abstract

dc:description.abstract

Í ritgerð þessari er fjallað um gagnaver á Íslandi og reynt að svara spurningunni er Ísland samkeppnishæft öðrum löndum á gagnaversmarkaði. Gagnaver hafa verið mikið í umræðunni hér á landi og víðs vegar um heiminn. Spurningin er, er þetta nýja atvinnutækifæri Íslands eða eru væntingarnar of miklar. Það má segja að Ísland sé aðeins að taka fyrstu skref sín í gagnaversiðnaðinum, sérstaklega þegar litið er á gagnaver af stærri toga. Fjölmörg fyrirtæki hafa sýnt áhuga á að staðsetja gagnaver sín á Íslandi en hingað til hefur aðeins eitt verið tekið í notkun, Thor Data Center. Thor gagnaverið var tekið í notkun 21.maí 2010 og því aðeins búið að vera starfandi í tæpt ár. Farið verður yfir kosti og ókosti Íslands sem staðsetningu fyrir gagnaver en fjölmargir þættir koma málinu við. Hvaða þættir eru það sem skipta máli þegar valin er staðsetning fyrir gagnaver? Hafði efnahagskreppan eða eldgosið í Eyjafjallajökli einhver áhrif á þróun gagnaversiðnaðar á Íslandi eða eru það lög og reglur sem hindra uppbyggingu þeirra? Munu gagnaverin hafa góð áhrif á samfélagið til dæmis með atvinnusköpun? Hvar stendur Ísland í dag og hvernig gæti framtíðin litið út? Þessum spurningum og öðrum verður svarað í þessari ritgerð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Unnur Sigurðardóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/9758
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/9758

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Unnur Sigurðardóttir 1986-. Gagnaver : samkeppnishæfni Íslands. 2011. http://hdl.handle.net/1946/9758