Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð er farið yfir stefnu átta Evrópusambandsríkja, auk Íslands, gagnvart vændi,mansali, fæðingarorlofi og fóstureyðingum. Markmiðið er að skoða Evrópuvæðingu á mannréttindum kvenna í þessum ríkjum. Sérstök áhersla er lögð á heilsufélagslega þætti og farið yfir regluverk í þessum málaflokkum. Kenningarlegur grundvöllur umfjöllunarinnar er sóttur í Evrópusamruna annars vegar og kvenfrelsi hins vegar. Skoðað er hvernig Evrópusamruninn færir sig frá því að vera hreint efnahagssamstarf og yfir í aukna samvinnu á pólitískum og félagslegum grundvelli. Farið er yfir kenningar femínista og hvernig þær kenningar endurspeglast í stefnum stjórnvalda. Stefnugreiningu er beitt til að kanna áhrif löggjafar hvers ríkis fyrir sig á stöðu kvenna gagnvart kynbundnu ofbeldi í formi vændis og mansals, lögum um fæðingarorlof og rétt til fóstureyðinga. Niðurstaðan er sú að jafnréttislöggjöf hefur að hluta til áhrif á stöðu kvenna í þessum Evrópuríkjum, en aðrir þættir spila þó töluvert hlutverk og má þar helst nefna vinnumarkað, trúarbrögð, menningu, hefðir og ríkisstjórnir sjálfar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Helena Eydal 1972-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/7910
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/7910