Back to results

Bifröst University

Réttur ákærða til að vera viðstaddur skýrslutökur við aðalmeðferð máls með sérstöku tilliti til undantekninga

Abstract

dc:description.abstract

Þegar um sakamál ræðir eru málsaðilar annars vegar ákæruvaldið og hins vegar ákærði. Þar af leiðandi er mikilvægt að réttur ákærða til réttlátrar málsmeðferðar skv. 1. mgr. 70. gr. stjskr., sbr. 1. og 3. mgr. 6. gr. MSE, sé tryggður. Liður í réttlátri málsmeðferð er réttur ákærða til að vera viðstaddur skýrslutökur við aðalmeðferð máls skv. 1. mgr. 166. gr. sml. og hefur íslensk dómaframkvæmd túlkað þennan rétt ákærða með hliðsjón af 1. mgr. 70. gr. stjskr., sbr. 1. og 3. mgr. 6. gr. MSE í þeim fáu dómum sem ákvæði þetta hefur verið skýrt. Frá þessum rétti ákærða er að finna undantekningarheimildir sem ekki eru taldar brjóta gegn réttindum ákærða ef skilyrði eru uppfyllt og rétt er staðið að framkvæmd. Hina almennu undantekningarheimild er að finna í 1. mgr. 123. gr. sml. þar sem dómara er veitt heimild til að víkja ákærða úr þinghaldi telji hann að nærvera ákærða sé íþyngjandi fyrir vitni og nærvera hans hafi áhrif á framburð þess. Bæði þessi skilyrði þurfa að vera uppfyllt. Hinar sérstöku undantekningarheimildir eru að finna í 2. mgr. 123. gr. sml. þar sem dómara er veitt heimild til að víkja ákærða úr þinghaldi á meðan skýrsla er tekin af vitni undir 15 ára aldri. Einnig ef vitni gefur skýrslu fyrir dómi undir nafnleynd. Sömu skilyrði þurfa í þeim tilvikum að vera uppfyllt og í hinni almennu undantekningarheimild. Taki dómari ákvörðun um að víkja ákærða úr þinghaldi á meðan skýrslutökur fara fram við aðalmeðferð máls og skerða þar með réttindi hans til að vera viðstaddur, þá ber honum skv. 3. mgr. 123. gr. sml. að tryggja að ákærði geti fylgst með skýrslutökum um leið og þær fara fram gegnum þar til gerðan búnað. Ef ágreiningur rís vegna ákvörðunar dómara um að víkja ákærða úr þinghaldi á meðan skýrslutökur fara fram við aðalmeðferð máls, þá ber dómara skv. n-lið 1. mgr. 192. gr. sml. að taka afstöðu til ágreiningsins með úrskurði. Úrskurður dómara er kæranlegur til Hæstaréttar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Inga Rut Guðmannsdóttir 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/7905
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/7905

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Inga Rut Guðmannsdóttir 1983-. Réttur ákærða til að vera viðstaddur skýrslutökur við aðalmeðferð máls með sérstöku tilliti til undantekninga. 2011. http://hdl.handle.net/1946/7905