Back to results

Bifröst University

Þróun mannréttinda í Rússlandi

Abstract

dc:description.abstract

Samkvæmt Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna eru mannréttindi skilgreind sem „þau grundvallarmannréttindi og það frelsi sem allar manneskjur eiga rétt á.“ þ.m.t. réttindi til lífs og frelsis, málfrelsi og jafnræði fyrir lögunum. Kommúnistastjórn Sovétríkjanna hafði talsvert aðra sýn á hugtakið mannréttindi heldur en mannréttindafrömuðir nútímans. Vestræn túlkun segir að mannréttindi séu vörn einstaklingsins og þeim sé beitt gegn oki ríkisvaldsins. Hin sovéska kenning sagði að vörnin næði yfir samfélagið sjálft. Sýn Sovétríkjanna lagði aðallega áherslu á efnhagsleg og félagsleg réttindi og að án þeirra væru borgaraleg og pólitísk réttindi óþörf. Við stjórn landsins var lagt hart að almenningi við að sýna opinberan stuðning við hugsjónir kommúnismans. Af því leiddi að borgaraleg og pólitísk réttindi voru mjög takmörkuð. Trekk í trekk hafa mannréttindasamtök og alþjóðastofnanir lýst yfir áhyggjum af ástandi mannréttindamála í Rússlandi og skýrslur þaðan gefa heldur svarta mynd. Í þessari ritgerð er leitast við að svara því hvort ástand mannréttindamála hafi skánað eða versnað við fall Sovétríkjanna og er þá helst litið til stjórnmálasögunnar þar og skýrslna frá mannréttindasamtökum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ragnheiður Júlía Ragnarsdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/7793
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/7793

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ragnheiður Júlía Ragnarsdóttir 1984-. Þróun mannréttinda í Rússlandi. 2011. http://hdl.handle.net/1946/7793