Abstract
dc:description.abstractSú gríðarlega breyting sem varð á högum íslensku þjóðarinnar haustið 2008 verður lengi í minnum höfð. Hér varð kerfishrun sem á sér fá ef nokkur fordæmi. Í þessari skýrslu fer höfundur yfir þá stöðu sem nú er uppi í íslensku efnahagslífi og leggur mat sitt á það. Rannsóknin var framkvæmd að mestu með megindlegum rannsóknaraðferðum, notast var við upplýsingaveitur líkt og heimasíðu Seðlabanka Íslands, Hagstofu Íslands, skýrslur Alþjóða gjaldeyrissjóðsins, skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis o.fl. Einnig er að finna í skýrslunni það helsta sem kom fram í viðtölum höfundar við forsvarsmenn þriggja mikilvægra samtaka í íslensku atvinnulífi. Helstu niðurstöður höfundar eru þær að mörg jákvæð teikn eru á lofti og stærstur hluti lítilla og meðalstórra fyrirtækja er í skilum með lán sín. Mikilvægt er þó að leysa skuldavanda heimila og fyrirtækja til þess að skapa hér grundvöll fyrir atvinnuvegafjárfestingar sem aftur skilar sér í nýjum störfum. Í fjármálum hins opinbera hefur stefnan verið sett á jákvæðan frumjöfnuð strax árið 2011 og jákvæðan heildarjöfnuð árið 2013.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Gylfi Jónsson 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/7602
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/7602