Back to results

Bifröst University

Er Transnistríudeilan þjóðernisdeila ?

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni þessarar lokaritgerðar er deila sem lítíð hefur farið fyrir og gæti verið sem falinn eldur vegna spennu meðal ýmissa þjóðarbrota víðs vegar um Evrópu. Deilan snýst um tilvist landsvæðisins Transnistríu sem liggur á milli Moldavíu og Úkraínu. Í áraraðir hefur verið deila um landsvæðið milli stjórnarinnar í Moldavíu og ráðamanna í Transnistríu þar sem krafa hinna síðarnefndu er sjálfstæði. Í ritgerðinni er leitast við að skoða og skilgreina deilumálin út frá sögu- og menningarlegum þáttum, landfræðilegum, stjórnmálalegum, efnahagslegum og hernaðarlegum þáttum. Einnig er fjallað um utanaðkomandi áhrifavalda deilunnar. Ritgerðin byggir á heimildum sem fengnar eru úr greinum, bókum og skýrslum ásamt munnlegum upplýsingum heimafólks og vettvangskönnunum höfundar. Árangur þessarar skoðunar er að skilja má betur stöðuna eins og hún er núna. Að deilan sem í byrjun var þjóðernisdeila hefur þróast yfir í að viðhalda óbreyttu ástandi til að tryggja áframhaldandi efnahagslega velferð ráðamanna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Grímur Axelsson 1976-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/7584
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/7584

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Grímur Axelsson 1976-. Er Transnistríudeilan þjóðernisdeila ?. 2011. http://hdl.handle.net/1946/7584