Back to results

Bifröst University

Rafrænt eftirlit með dómþolum : vænlegur kostur á Íslandi? : litið til reynslu Svía

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari lokaritgerð er fjallað um rafrænt eftirlit með dómþolum, hvað er rafrænt eftirlit og hver er reynsla Svía af rafrænu eftirliti. Höfundur veltir fyrir sér þeirri spurningu hvort rafrænt eftirlit sé vænlegur kostur á Íslandi, með tilliti til reynslu Svía og stöðu fangelsismála hér á landi. Í þessu sambandi skoðar höfundur refsingar og viðurlög í sögulegu samhengi til dagsins í dag. Sérstaklega er skoðuð reynsla Svía þar sem þeir hafa mesta reynslu af úrræðinu af Norðurlandaþjóðunum. Fangelsisyfirvöld í Svíþjóð hafa falið Rannsóknarstofnun afbrotamála þar í landi, Brottförebyggande rådet, að fara með úttektir á eftirlitinu og skoðar höfundur þær. Hér á landi hefur rafrænt eftirlit ekki verið tekið upp. Möguleika á upptöku úrræðisins hefur þó verið velt upp og nú er í undirbúningi frumvarp þar sem kveðið er á um að rafrænt eftirlit verði möguleiki sem fullnustuúrræði á Íslandi. Fangelsismálastofnun ríkisins stendur frammi fyrir því að boðunarlistar eru langir og dómar hafa jafnvel tekið að fyrnast. Fangelsismálastofnun ríkisins skortir úrræði til að fullnusta dóma svo viðurlagakerfið reynist skilvirkt. Niðurstaða höfundar er að tímabært sé að innleiða rafrænt eftirlit sem fullnustuúrræði á Íslandi. Nútímatækni hefur gert það mögulegt að fylgjast með dómþolum á skilvirkan og öruggan hátt, eftirlitið hefur gefist vel víða og þar má sérstaklega benda á góða reynslu nágrannaþjóðar okkar Svíþjóðar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigrún Erna Sævarsdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/7581
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/7581

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigrún Erna Sævarsdóttir 1986-. Rafrænt eftirlit með dómþolum : vænlegur kostur á Íslandi? : litið til reynslu Svía. 2011. http://hdl.handle.net/1946/7581