Bifröst University
Byggða- og uppbyggingarstefna Evrópusambandsins : tækifæri íslenskra byggða?
Abstract
dc:description.abstractViðfangsefni ritgerðarinnar er byggða- og uppbygginarstefna Evrópusambandsins. Markmið hennar er að varpa ljósi á stefnuna og meta óbeina kosti og galla hennar fyrir íslensk byggðamál. Skoðaðar eru þær séraðstæður sem Ísland getur beitt fyrir sig í aðildarviðræðum um byggðamál og líklegum samningsáherslum landsins í byggðamálum gerð skil. Leitað var til reynslu nágrannaþjóðanna Finnlands, Svíþjóðar og Írlands við mat og til rökstuðnings á rannsóknarspurningum ritgerðarinnar. Smáríkjakenningar og hugtakið svæðaauður þjóna loks mikilvægu hlutverki í túlkun á niðurstöðum og möguleikum Íslands innan byggðastefnunnar komi til aðildar landsins. Niðurstöður ritgerðarinnar sýna að byggða- og uppbyggingarstefna Evrópusambandsins á erindi við Ísland. Niðurstöður benda til þess að kostir byggðastefnunnar leynist fyrst og síðast í þeirri nálgun og þeim lærdómi sem hún veitir svæðum í Evrópu. Ljóst þykir að héruð og sveitarstjórnir öðlast aukið hlutverk og svigrúm til sinna athafna með þátttöku í verkefnum styrktum af uppbyggingarsjóðum sambandsins. Í ljósi þess ástands sem ríkir í byggðamálum á Íslands og þeirrar sérstöðu sem landið mögulega nyti við upptöku byggðastefnu Evrópusambandsins sýnir ritgerðin að kostirnir yrðu fleiri en gallar hennar. Með hliðsjón af þeim smáríkjakenningum sem talað er um í ritgerðinni má gera ráð fyrir því að Ísland forgangsraði hagsmunum sínum í Evrópusambandinu. Byggðamál yrðu framarlega í forgangsröð landsins ef möguleg sérstaða landsins fæst viðurkennd í aðildarsamningi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Tryggvi Haraldsson 1981-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/7008
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/7008