Back to results

Bifröst University

Skattlagning með tilliti til fjölskyldunnar

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er leitað svara við rannsóknarspurningunum Er íslenska tekjuskattskerfið fjölskylduvænt? og Hvernig má gera tekjuskattskerfið fjölskylduvænna? Byrjað var á að skilgreina orðin „fjölskylda“ og „fjölskylduvænt“. Því næst var sá hluti íslenska tekjuskattskerfisins sem snýr að skattlagningu manna utan rekstrar skoðaður vel ásamt helstu skattlagningarreglum sem gilda um hjón. Ákveðið var að bera íslenska skattkerfið saman við danska skattkerfið og var það því rannsakað á sama hátt og íslenska skattkerfið og skattkerfin svo borin saman. Þegar upp er staðið er ekki hægt að gefa einfalt já eða nei svar við spurningunni Er íslenska tekjuskattskerfið fjölskylduvænt? Skattkerfið miðar við skattlagningu einstaklinga en býr þó yfir ýmsum liðum sem telja má fjölskylduvæna, það er því hægt að segja að íslenska tekjuskattskerfið sé að einhverju leyti fjölskylduvænt. Íslenska tekjuskattskerfið má meðal annars gera fjölskylduvænna með sérstakri fjölskylduskattlagningu, heimila frádrátt vaxtagjalda á móti vaxtatekjum, vaxtagjaldaþaki, fleiri frádráttarheimildum, sérstökum fjölskyldufrádrætti, heimild foreldra til að nýta skattkort heimabúandi barna, afnámi tekju- og eignatenginga, og með skattfrjálsum endurgreiðslum á tilteknum kostnaði svo að eitthvað sé nefnt. Er hér að finna svar við spurningunni Hvernig má gera tekjuskattskerfið fjölskylduvænna?

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jórunn Kristín Fjeldsted 1966-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/6681
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/6681

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jórunn Kristín Fjeldsted 1966-. Skattlagning með tilliti til fjölskyldunnar. 2010. http://hdl.handle.net/1946/6681