Back to results

Bifröst University

Kreppan mikla og Krísan 2007 - 2010 : samanburður út frá Kindelberger/Minsky módelinu og yfirlit yfir hagsöguna á milli krísanna tveggja

Abstract

dc:description.abstract

Fall fjárfestingabankans Lehman Brothers í september 2008 hrinti af stað verstu krísu síðan Kreppan mikla reið yfir heimsbyggðina á síðustu öld. Það var þessi margsagða setning sem varð til þess að skýrsluhöfundi þótti áhugavert að leggja þessar tvær krísur að jöfnu út frá módeli Kindleberger/Minsky um fjármálalegt ójafnvægi og skoða í leiðinni hvað veldur því að hlutirnir endurtaka sig þrátt fyrir bitra reynslu. Það var gert með því að skoða hagþróun á milli krísanna tveggja. Frá einni hnattrænni krísu til þeirrar næstu hefur mikið vatn runnið til sjávar, þau viðhorf sem mögnuðust upp eftir Kreppuna miklu um regluvæðingu fjármálakerfisins koðnuðu að miklu leiti niður ásamt þeim reglum sem settar voru í kjölfarið á henni. Nú eru svipuð viðhorf uppi og voru ríkjandi eftir að Kreppan mikla hafði gengið yfir og því ljóst að sagan er að miklu leiti að endurtaka sig. Niðurstöður benda til þess að sagan endurtaki sig og að þetta sé vissulega versta krísa sem hinn hnattræni efnahagsheimur hefur gengið í geng um frá lokum Heimstyrjaldarinnar síðari. Margt er svipað í aðdraganda og afleiðingum krísanna tveggja þó lærdómurinn frá þeirri fyrri geri afleiðingarnar krísunnar í dag eru hvergi nærri eins skelfilegar og afleiðingar Kreppunnar miklu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Elías Árni Jónsson 1976-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/6676
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/6676

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elías Árni Jónsson 1976-. Kreppan mikla og Krísan 2007 - 2010 : samanburður út frá Kindelberger/Minsky módelinu og yfirlit yfir hagsöguna á milli krísanna tveggja. 2010. http://hdl.handle.net/1946/6676