Back to results

Bifröst University

Þróun háskólaumhverfis á Íslandi - staðan 2010 : yfirvofandi breytingar

Abstract

dc:description.abstract

Í kjölfar atburða síðustu ára á fjármálamarkaðnum er ljóst að víða er þörf á hagræðingum. Þar er háskólasamfélagið engin undantekning en frá árinu 2008 hafa háskólarnir verið krafðir um mikinn samdrátt í rekstri og mun sú krafa aukast næstu árin. Í þessari ritgerð er kannað hver þróun háskólasamfélagsins hefur verið síðasta áratuginn en hún virðist hafa verið afar hröð og þanist upp úr öllu valdi. Þessi vöxtur hér á landi er settur í samanburð við þróun þessara mála í löndum sem Ísland ber sig gjarnan saman við á þessu sviði. Markmið ritgerðarinnar er að skoða og meta tillögur til hagræðingar og er þá sérstaklega litið til tveggja skýrslna sem vinnuhópar á vegum menntamálaráðuneytisins unnu og kynntu þann 25. maí árið 2009. Vænlegasta leiðin til sparnaðar virðist vera sameiningar ásamt aukinni margþættri samvinnu innan háskólakerfisins og er það ályktun aðila á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Samkvæmt þeirri umfjöllun sem hefur átt sér stað vorið 2010 á opinberum vettvangi má vænta mikilla breytingar á háskólastigi á þessu ári og næstu árum. Í ritgerðinni eru einnig dregnar saman opinber umræða og hugmyndir aðila háskólanna sem hafa komið fram á siðustum misserum. Umræða um hugsanlegar leiðir í endurskoðunarvinnu á háskólastigi hefur átt sér stað á bak við tjöldin síðustu tvö ár án þess að virðast hafa borið mikinn ávöxt þar sem málið er bæði margþætt og krefst róttækra breytinga sem sumar hverjar geta hugsanlega ekki fallið öllum í geð. Hvað sem öðru líður stendur menntakerfi á háskólastigi frammi fyrir niðurskurði í ár og næstu ár sem þarf að mæta með einhverjum hætti ásamt því að beturumbæta þarf heildarstefnu á þessu menntunarstigi til framtíðar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Inga Lísa Sólonsdóttir 1980-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/6660
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/6660

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Inga Lísa Sólonsdóttir 1980-. Þróun háskólaumhverfis á Íslandi - staðan 2010 : yfirvofandi breytingar. 2010. http://hdl.handle.net/1946/6660