Back to results

Bifröst University

www.24.is : viðskiptaáætlun

Abstract

dc:description.abstract

www.24.is hugmyndin gengur út á þróun og opnun á vefsíðu með ókeypis smáauglýsingar fyrir notuð ökutæki með aðaláherslu á einkamarkað. Á sama vef verður fréttaveita fyrir ökutæki, nýjungar þeim tengdum og lífsstíl sem þeim fylgir. Skýrsluhöfundur byrjaði á því að skilgreina þörfina fyrir vöruna og komst að því að framboð á slíkum vefjum er lítið og þeir vanþróaðir. Þörfina skilgreinir skýrsluhöfundur hins vegar sem mjög mikla með mikla vaxtamöguleika. Næst var samkeppnisumhverfið skoðað, markaðsumhverfi og innkoma á markaði skilgreind, stefnumótun, stjórnun og skipulag hugmyndarinnar er síðan sett fram í skýrslunni. Niðurstaða skýrslunnar er sú að mikil tækifæri eru í innkomu með slíka vöru á markað á þessum tímapunkti. Innra umhverfi hagkerfisins og tæknilegir drifkraftar þess hentar sérstak- lega vel í dag til markaðssetningar á vörunni til að efla einkamarkaði í það sem þekkist á þróuðum mörkuðum erlendis sem felast í mjög stórum skilvirkum einkamörkuðum drifna áfram á veraldarvefnum. www.24.is stefnir að því að ná í sína fyrstu viðskiptavini með góðum innri undirbúningi og markvissri auglýsingasmölun af vefjum samkeppnisaðila og byggja þannig upp frá fyrsta degi öflugan grunn sem eftirsókn verður í. Áætlanir gera ráð fyrir að jákvætt greiðsluflæði náist í upphafi þriðja starfsárs og verður hagnaðarvon að teljast ágæt m.v. óverulega fjárhagslega áhættu af verkefninu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Oliver Pálmason 1971-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/6657
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/6657

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Oliver Pálmason 1971-. www.24.is : viðskiptaáætlun. 2010. http://hdl.handle.net/1946/6657