Bifröst University
Stangaveiðimarkaðurinn á Íslandi : mat á heildartekjum af laxveiðileyfasölu árið 2009
Abstract
dc:description.abstractLaxveiði er orðin samgróin íslensku þjóðinni og er afþreying og áhugamál fjölda fólks. Þeir aðilar sem stunda sölu á laxveiðileyfum á Íslandi eru fjölmargir og þjónusta við veiðimenn eykst ár frá ári. Sýnt hefur verið fram á að laxveiði á stöng hefur töluverð efnahagsleg áhrif og aflar tekna fyrir þjóðarbúið í heild sinni. Tilgangur rannsóknarinnar er að skoða tekjur af laxveiði á stöng hér á landi og meta stærð íslenska laxveiðileyfamarkaðarins eins og hann er í dag. Rannsóknarspurningin er: „Hverjar voru heildartekjur af laxveiðileyfasölu á Íslandi árið 2009?“ Í ritgerðinni er verið að skoða verð á hvern stangardag í öllum helstu ám landsins. Reiknilíkan fyrir verð á laxveiðileyfum var sett fram í þeim tilgangi að geta metið hvert verðið er í þeim ám þar sem ekki fékkst uppgefið verð á leyfum. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna hverjar heildartekjur af sölu laxveiðileyfa voru árið 2009. Tekjunum er skipt niður á hvert landsvæði í hlutfalli við stærð þess miðað við meðalveiði. Að auki eru efnahagsleg áhrif metin út frá líkani sem birt var í skýrslu gefinni út af Hagfræðistofnun árið 2004. Það er von höfundar að niðurstöður ritgerðarinnar veiti haldgóðar upplýsingar um tekjurnar sem fást á ári hverju í þeirri grein sem sala laxveiðileyfa er.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sigurbergur Steinsson 1966-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/6655
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/6655