Back to results

Bifröst University

Er hagkvæmt fyrir samfélagið að gefa MS-sjúklingum Tysabri í stað annarra ódýrari lyfja?

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð verður fjallað um kostnað samfélagsins vegna MS-lyfsins Tysabri og leitast við að skoða hvort kostnaður vegna MS-sjúklings sem er á Tysabrimeðferð sé í raun mikið hærri en kostnaður vegna MS-sjúklings sem er á annarskonar fyrirbyggjandi meðferð þegar uppi er staðið. Það hefur sýnt sig að Tysabri er mun virkara en önnur MS-lyf bæði þar sem það dregur úr MS-einkennum og getur fyrirbyggt að fötlun verði hjá sjúklingi. Höfundi þótti því vert að skoða þetta málefni og greina kostnað fyrirbyggjandi MS-lyfja með tilliti til kostnaðar sem fellur til vegna MS-einkenna og fötlunar sem sjúkdómurinn hefur í för með sér. Helstu niðurstöður, sem teknar voru útfrá gögnum sem safnað var frá stofnunum sem tengjast efni ritgerðarinnar sem og viðtölum við aðila sem tengjast efninu, eru þær að hagkvæmt er fyrir samfélagið að gefa þeim MS-sjúklingum sem þörf hafa lyfið Tysabri. Mesta hagkvæmnin felst í því að gefa sjúklingum lyfið tímanlega eða áður en mörg MS-einkenni eða fötlun fara að gera vart við sig sem síðar geta orsakað að einstaklingurinn falli af vinnumarkaði. Það er hagkvæmt fyrir samfélagið að sem flestir þegnar þess séu vinnufærir og borgi þar með skatt til samfélagsins í stað þess að þiggja bætur af því. Einnig er gríðarlega kostnaðarsamt að leggja einstakling inn á hjúkrunarheimili til lengri tíma fyrir aldur fram en sú er raunin í tilfellum margra MS-sjúklinga sem eru orðnir mjög slæmir vegna sjúkdóms síns. Því fælist hagkvæmni í því að gefa sjúklingum Tysabri ef að það myndi halda þeim það hraustum að þeir gætu enn séð um sig sjálfir og þyrftu ekki að leggjast inn á stofnun. Þrátt fyrir að þeir færu ekki aftur á vinnumarkað myndi sparnaðurinn við að halda þeim utan hjúkrunarheimilis vera nægur til að koma á móts við kostnaðinn af Tysabri.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ingunn Bjarnadóttir 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/6624
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/6624

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ingunn Bjarnadóttir 1979-. Er hagkvæmt fyrir samfélagið að gefa MS-sjúklingum Tysabri í stað annarra ódýrari lyfja?. 2010. http://hdl.handle.net/1946/6624