Back to results

Bifröst University

Áhrif menningar í alþjóðaviðskiptum : hverjir eru helstu áhrifaþættir ólíkra menninga í samningaviðræðum?

Abstract

dc:description.abstract

Skýrsluhöfundur hefur unnið í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi undanfarin 6 ár. Partur af daglegum störfum höfundar voru samskipti við fólk úr mismunandi menningarheimum. Samningar við erlenda samstarfsaðila var einnig drjúgur partur af starfi höfundar, með tilheyrandi ferðalögum til ólíkra og stundum framandi landa. Í ljósi þessarar reynslu höfundar var ritgerðarefnið valið. Við vinnslu ritgerðarinnar skoðaði höfundur ýmsar kenningar fræðimanna á alþjóðaviðskiptum annarsvegar og menningu hinsvegar. Eftir að hafa skoðað fræðilega hlutann leitaðist höfundur við að svara rannsóknarspurningunni: Hverjir eru helstu áhrifaþættir ólíkra menninga í samningaviðræðum? Auðvitað eru engin tvenn samningaferli eins en við alla samningagerð eru þó nokkrir fastir punktar sem höfundur skilgreindi. Farið var nokkuð ýtarlega í gegnum ferlið og reynt að varpa ljósi á það hvernig mismunandi menning hefur áhrif í samningaviðræðum. Niðurstaða höfundar er sú að ef fyrirtæki ætla sér árangur í alþjóðaviðskiptum er alger grunnforsenda að kynna sér vel menningu þess lands sem samið er við, annars skapast hætta á að dýrkeypt mistök verði gerð sem erfitt getur verið að leiðrétta. Menningarlæsi er þannig snar þáttur í hæfni fyrirtækja í alþjóðaviðskiptum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Haukur Gíslason 1968-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/6106
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/6106

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Haukur Gíslason 1968-. Áhrif menningar í alþjóðaviðskiptum : hverjir eru helstu áhrifaþættir ólíkra menninga í samningaviðræðum?. 2010. http://hdl.handle.net/1946/6106