Back to results

Bifröst University

Hafa neysluvenjur viðskiptavina Yggdrasill.ehf breyst eftir að efnahagskreppa skall á árið 2008?

Abstract

dc:description.abstract

Lífrænar vörur hafa orðið vinsælar undanfarin ár vegna aukinnar vitundar neytenda á kostum hollrar fæðu og lífstíls. Yggdrasill.ehf er stærsti heild- og smásali lífrænna vara á Íslandi. Eftir efnahagskreppuna, sem skall á árið 2008, hafa neysluvenjur neytenda gjörbreyst. Efnahagsaðstæður hafa neytt neytendur til að halda aftur af neyslu sinni. Engu að síður er vitundin um kosti hollrar fæðu og lífstíls enn til staðar og því er enn eftirspurn eftir lífrænum vörum. Skýrsluhöfundur vildi kynna sér hvort neysluvenjur neytenda lífrænna vara hefði breyst eftir efnahagshrunið og leitaði eftir samstarfi við verslun Yggdrasill.ehf og viðskiptavina þeirra. Einnig vildi skýrsluhöfundur kanna samband milli atferli neytenda, teygni og eftirspurnar og notaði fræðibækur því til stuðnings. Við vinnslu þessarar rannsóknar var gerður spurningalisti sem viðskiptavinir Yggdrasils voru beðnir um að svara. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að neysluvenjur viðskiptavina Yggdrasils á lífrænum vörum hafa breyst töluvert. Viðskiptavinir finna verulega fyrir verðhækkunum sem hafa átt sér stað í kjölfar efnahagskreppunnar árið 2008 og myndu auka neyslu sína ef verðlag lækkaði.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Pétur Darri Sævarsson 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/6093
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/6093

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Pétur Darri Sævarsson 1983-. Hafa neysluvenjur viðskiptavina Yggdrasill.ehf breyst eftir að efnahagskreppa skall á árið 2008?. 2010. http://hdl.handle.net/1946/6093