Back to results

Bifröst University

Skattlagning afleiðusamninga : samanburður á íslenskri og danskri löggjöf

Abstract

dc:description.abstract

Skattlagning afleiðusamninga er flókin og hafa gildandi tekjuskattslög, nr. 90/2003, ekki að geyma ákvæði sem sérstaklega fjalla um skattlagningu þeirra, önnur en þau er varða samninga sem veittir eru starfsmönnum á grundvelli starfssambands. Ritgerð þessi fjallar um meðferð hagnaðar og taps af afleiðusamningum í íslenskum skattarétti samanborið við danskan skattarétt auk þess sem litið er til þess hvort og þá hvernig megi bæta íslenska skattalöggjöf með tilliti til skattlagningar afleiðusamninga. Hagnaður af afleiðusamningum telst til skattskyldra tekna í íslenskum rétti en við mat á því hvort tap sé frádráttarbært þarf að skoða með hvaða hætti samningurinn er gerður upp og í hvaða tilgangi hann var gerður. Í dönskum rétti er að finna sérstök ákvæði í lögum er varða skattlagningu afleiðusamninga og er töluverður munur á skattlagningu afleiðusamninga, sem ekki eru veittir á grundvelli starfsambands,hérlendis og í Danmörku. Rétt er að setja skýr ákvæði í tekjuskattslög um skattlagningu afleiðusamninga, annarra en þeirra sem veittir hafa verið á grundvelli starfsambands. Reglur tekjuskattslaga um skattlagningu afleiðusamninga sem veittir eru starfsmönnum sem hlunnindi eru aftur á móti skýrar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Árnný Sigurbjörg Guðjónsdóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/6080
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/6080

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Árnný Sigurbjörg Guðjónsdóttir 1985-. Skattlagning afleiðusamninga : samanburður á íslenskri og danskri löggjöf. 2010. http://hdl.handle.net/1946/6080