Back to results

Bifröst University

Menning og menningararfur í Hvalfjarðarsveit

Abstract

dc:description.abstract

Til að gera úttekt á menningu og menningararfi Hvalfjarðarsveitar voru eftirfarandi rannsóknarspurningar settar fram: Hvernig afmarkar sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar málaflokkinn menningu í stjórnsýslunni? Hvert er frumkvæði sveitarstjórnar og hvernig styður hún við einstaklingsframtak í menningarmálum? Á hvaða hátt hefur menningarstarf þróast í Hvalfjarðarsveit síðustu 200 árin? Hvernig stendur menningarstarfsemi Hvalfjarðarsveitar í dag? Hvaða möguleika hefur Hvalfjarðarsveit til að móta menn-ingartengd störf í sveitarfélaginu? Hver er möguleg framtíðarsýn Hvalfjarðarsveitar varðandi menningarstarfsemi? Til að svara þessum spurningum voru tekin viðtöl við sveitarstjóra, formenn nefnda og þá sem hafa með menningarmál að gera í sveitarfélaginu. Þegar saga sveitarfélagsins var skoðuð voru auk þess stutt símaviðtöl tekin við sérfræðinga í eldri málum. Þá voru m.a. fundargerðir nefnda greindar til þess að kanna starfssvið þeirra og skýrslur skoðaðar sem fjalla um atvinnumál og menningarmál á Vesturlandi. Afmörkun menningarmála í stjórnsýslu sveitarfélagsins er að finna á þremur stöðum; í Samþykkt um stjórn og fundarsköp Hvalfjarðarsveitar (2009) sem er nokkurs konar erindisbréf, Staðardagskrá 21 – Hvalfjarðarsveit (2008), sem er áætlun sveitarfélagsins til sjálfbærrar þróunar, og á fjárhagsáætlun sveitarfélagsins. Á tuttugustu öldinni var mikil þróun í menningarmálum þegar m.a. ungmennafélög, kvenfélög og skógræktarfélög voru stofnuð til þess að bæta samfélagið og umhverfið. Mikill menningararfur er á svæðinu og liggur meðal annars í landnámssögum og óáþreifanlegum menningararfi. Þessi arfur er ekki notaður til atvinnusköpunar svo neinu nemur í dag og gæti uppbygging menningartengdra starfa á svæðinu byggst á honum. Menningar- og atvinnumálanefndir sveitarinnar geta í framtíðinni tekið höndum saman til uppbyggingar spennandi viðkomustaða fyrir ferðamenn, sem byggja á menningararfi svæðisins. Menningarpíramíti Duelunds (1995) er hér notaður til afmörkunar menningarmála. Kenningar sem fjalla um ákvarðanatöku og stefnumótun er notaðar til greiningar á stjórnsýslunni. Kenning Kingdons um stefnuglugga (1984) er notuð til að greina hvað þarf að vera til staðar þegar ný tækifæri birtast og verða að veruleika og kenning Garreaus (1991) um útjaðar þéttbýlis, til að skýra stöðu Hvalfjarðarsveitar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Anna Leif Elídóttir 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/6069
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/6069

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Anna Leif Elídóttir 1970-. Menning og menningararfur í Hvalfjarðarsveit. 2010. http://hdl.handle.net/1946/6069