{"id":{"repo_id":"bifrost","oai_identifier":"oai:skemman.is:1946/6067"},"canonical_url":"https://search.dev.ndltd.org/etd/bifrost/oai:skemman.is:1946/6067","repository":{"repo_id":"bifrost","name":"Bifröst University","base_url":"https://skemman.is/oai/request"},"display":{"title":"Forysta í nýjum heimi","abstract":"Óstöðugleiki og breytingar einkenna okkar tíma en slíkt ástand kallar á nýjar hugmyndir um forystu og leiðtoga. Á okkar dögum þarf leiðtoginn að einbeita sér að möguleikum framtíðarinnar og hjálpa fólki að sjá heiminn í nýju ljósi. Hlutverk leiðtoga er að leiða fólk til þátttöku í verkefnum og kenna því að vinna með nýjum aðferðum. Leiðtogi framtíðarinnar þarf að leiða saman fólk og ólík sjónarmið, hafa styrk til að skapa samkomulag í samfélaginu og byggja brýr á milli ólíkra hópa. Það er þessi eiginleiki sem helst mun greina leiðtoga framtíðarinar frá leiðtogum fortíðarinnar Leiðtogar skapa nýja framtíðarsýn með því að breyta sjónarhorni sínu og átta sig á því hvað þeir sjá og hvernig þeir sjá. Leiðtogar verða að þjálfa færni sína í að greina aðstæður í samtímanum til að geta séð fyrir ný tækifæri og nýjan tilgang í framtíðinni. Á tímum alþjóðavæðingar er nauðsynlegt að hafa góða yfirsýn og skoða á málin út frá heildarsamhenginu. Eitt mikilvægasta verkefni skipulagsheilda á umbreytingatímum er að endurnýja sig. Á umbrotatímum leita á huga fólks spurningar eins og; hver er ég og hvert er hlutverk mitt? Svarið veltur á því hvaðan það kemur, hvort það kemur frá uppsprettu sérhagsmuna eða frá uppsprettu heildarhagsmuna sem bendir til dýpri skilnings á veruleikanum eins og hann er. Kenning U í leiðtogafræðum (e. Theory U) getur upplýst leiðtogann um hvernig hann á að þjálfa forystuhæfileika sína og hvernig kenninguna má nota við raunhæfar aðstæður. U-ferlið er eins konar leiðarakort til að auðvelda einstaklingum að stíga inn í mikilsverðar breytingar og sjálfsskoðun. Þegar leiðtoginn þróar forystuhæfileika sína er hann jafnframt að styrkja sjálfsmynd sína og andlega færni en nýar hugsjónir forystu byggjast nú fremur á því hver leiðtoginn er en hvað hann gerir. Nýjar aðferðir í leiðtogafræðunum eru aðeins ein birtingarmynd þeirra breytinga sem eru að verða á flestum sviðum vísinda og hugmyndir um hlutverk leiðtogans í framtíðinni gera ráð fyrir því að vísindamenn úr ólíkum greinum samhæfi krafta sína og bregðist við verkefnum með öðrum hætti en áður. Sumir fræðimenn telja að helstu orsakir erfiðleika í heilbrigðisþjónustu í dag sé of mikil áhersla á sérhæfingu. Heilbrigðiskerfi þurfa almennt ekki sérfræðinga á einu sviði til að stjórna og skipuleggja, heldur einstaklinga eða leiðtoga sem geta tekist á við ágreining innan kerfisins, leitt fólk til samstarfs og gert nýja sýn í heilbrigðisþjónustu að veruleika.","abstract_html":"Óstöðugleiki og breytingar einkenna okkar tíma en slíkt ástand kallar á nýjar hugmyndir um forystu og leiðtoga. Á okkar dögum þarf leiðtoginn að einbeita sér að möguleikum framtíðarinnar og hjálpa fólki að sjá heiminn í nýju ljósi. Hlutverk leiðtoga er að leiða fólk til þátttöku í verkefnum og kenna því að vinna með nýjum aðferðum. Leiðtogi framtíðarinnar þarf að leiða saman fólk og ólík sjónarmið, hafa styrk til að skapa samkomulag í samfélaginu og byggja brýr á milli ólíkra hópa. Það er þessi eiginleiki sem helst mun greina leiðtoga framtíðarinar frá leiðtogum fortíðarinnar Leiðtogar skapa nýja framtíðarsýn með því að breyta sjónarhorni sínu og átta sig á því hvað þeir sjá og hvernig þeir sjá. Leiðtogar verða að þjálfa færni sína í að greina aðstæður í samtímanum til að geta séð fyrir ný tækifæri og nýjan tilgang í framtíðinni. Á tímum alþjóðavæðingar er nauðsynlegt að hafa góða yfirsýn og skoða á málin út frá heildarsamhenginu. Eitt mikilvægasta verkefni skipulagsheilda á umbreytingatímum er að endurnýja sig. Á umbrotatímum leita á huga fólks spurningar eins og; hver er ég og hvert er hlutverk mitt? Svarið veltur á því hvaðan það kemur, hvort það kemur frá uppsprettu sérhagsmuna eða frá uppsprettu heildarhagsmuna sem bendir til dýpri skilnings á veruleikanum eins og hann er. Kenning U í leiðtogafræðum (e. Theory U) getur upplýst leiðtogann um hvernig hann á að þjálfa forystuhæfileika sína og hvernig kenninguna má nota við raunhæfar aðstæður. U-ferlið er eins konar leiðarakort til að auðvelda einstaklingum að stíga inn í mikilsverðar breytingar og sjálfsskoðun. Þegar leiðtoginn þróar forystuhæfileika sína er hann jafnframt að styrkja sjálfsmynd sína og andlega færni en nýar hugsjónir forystu byggjast nú fremur á því hver leiðtoginn er en hvað hann gerir. Nýjar aðferðir í leiðtogafræðunum eru aðeins ein birtingarmynd þeirra breytinga sem eru að verða á flestum sviðum vísinda og hugmyndir um hlutverk leiðtogans í framtíðinni gera ráð fyrir því að vísindamenn úr ólíkum greinum samhæfi krafta sína og bregðist við verkefnum með öðrum hætti en áður. Sumir fræðimenn telja að helstu orsakir erfiðleika í heilbrigðisþjónustu í dag sé of mikil áhersla á sérhæfingu. Heilbrigðiskerfi þurfa almennt ekki sérfræðinga á einu sviði til að stjórna og skipuleggja, heldur einstaklinga eða leiðtoga sem geta tekist á við ágreining innan kerfisins, leitt fólk til samstarfs og gert nýja sýn í heilbrigðisþjónustu að veruleika.","abstract_has_math":false,"creators":["Arnheiður Guðmundsdóttir 1949-"],"institution":null,"degree_name":null,"degree_level":null,"degree_discipline":null,"degree_department":null,"school":null,"contributors":["Háskólinn á Bifröst"],"advisors":[],"committee_chairs":[],"committee_members":[],"year":2010,"date_issued":"2010-08-26","date_published":"2010-08-26","updated_at":"2026-07-27T18:54:29Z","subjects":["Viðskiptafræði","Heilbrigðisþjónusta","Leiðtogar"],"languages":["is"],"rights":[],"rights_urls":[],"identifier_entries":[]},"links":{"outbound_url":"http://hdl.handle.net/1946/6067","outbound_label":"Handle","outbound_source":"dc:identifier.uri"},"metadata_groups":[{"id":"people","label":"People","entries":[{"key":"dc:contributor","label":"Contributor","values":["Háskólinn á Bifröst"]},{"key":"dc:creator","label":"Author","values":["Arnheiður Guðmundsdóttir 1949-"]}]},{"id":"academic_context","label":"Academic Context","entries":[{"key":"dc:date.accessioned","label":"Dc Date Accessioned","values":["2010-08-26T13:58:17Z"]},{"key":"dc:date.available","label":"Dc Date Available","values":["2010-08-26T13:58:17Z"]},{"key":"dc:date.issued","label":"Date","values":["2010-08-26"]},{"key":"dc:type","label":"Dc Type","values":["Thesis"]}]},{"id":"subjects_keywords","label":"Subjects and Keywords","entries":[{"key":"dc:subject","label":"Dc Subject","values":["Viðskiptafræði","Heilbrigðisþjónusta","Leiðtogar"]}]},{"id":"language_rights","label":"Language and Rights","entries":[{"key":"dc:language.iso","label":"Language (ISO)","values":["is"]}]},{"id":"identifiers","label":"Identifiers","entries":[{"key":"dc:identifier.uri","label":"Identifier URI","values":["http://hdl.handle.net/1946/6067"]}]},{"id":"additional","label":"Additional Metadata","entries":[{"key":"dc:description.abstract","label":"Abstract","values":["Óstöðugleiki og breytingar einkenna okkar tíma en slíkt ástand kallar á nýjar hugmyndir um forystu og leiðtoga. Á okkar dögum þarf leiðtoginn að einbeita sér að möguleikum framtíðarinnar og hjálpa fólki að sjá heiminn í nýju ljósi. Hlutverk leiðtoga er að leiða fólk til þátttöku í verkefnum og kenna því að vinna með nýjum aðferðum. Leiðtogi framtíðarinnar þarf að leiða saman fólk og ólík sjónarmið, hafa styrk til að skapa samkomulag í samfélaginu og byggja brýr á milli ólíkra hópa. Það er þessi eiginleiki sem helst mun greina leiðtoga framtíðarinar frá leiðtogum fortíðarinnar Leiðtogar skapa nýja framtíðarsýn með því að breyta sjónarhorni sínu og átta sig á því hvað þeir sjá og hvernig þeir sjá. Leiðtogar verða að þjálfa færni sína í að greina aðstæður í samtímanum til að geta séð fyrir ný tækifæri og nýjan tilgang í framtíðinni. Á tímum alþjóðavæðingar er nauðsynlegt að hafa góða yfirsýn og skoða á málin út frá heildarsamhenginu. Eitt mikilvægasta verkefni skipulagsheilda á umbreytingatímum er að endurnýja sig. Á umbrotatímum leita á huga fólks spurningar eins og; hver er ég og hvert er hlutverk mitt? Svarið veltur á því hvaðan það kemur, hvort það kemur frá uppsprettu sérhagsmuna eða frá uppsprettu heildarhagsmuna sem bendir til dýpri skilnings á veruleikanum eins og hann er. Kenning U í leiðtogafræðum (e. Theory U) getur upplýst leiðtogann um hvernig hann á að þjálfa forystuhæfileika sína og hvernig kenninguna má nota við raunhæfar aðstæður. U-ferlið er eins konar leiðarakort til að auðvelda einstaklingum að stíga inn í mikilsverðar breytingar og sjálfsskoðun. Þegar leiðtoginn þróar forystuhæfileika sína er hann jafnframt að styrkja sjálfsmynd sína og andlega færni en nýar hugsjónir forystu byggjast nú fremur á því hver leiðtoginn er en hvað hann gerir. Nýjar aðferðir í leiðtogafræðunum eru aðeins ein birtingarmynd þeirra breytinga sem eru að verða á flestum sviðum vísinda og hugmyndir um hlutverk leiðtogans í framtíðinni gera ráð fyrir því að vísindamenn úr ólíkum greinum samhæfi krafta sína og bregðist við verkefnum með öðrum hætti en áður. Sumir fræðimenn telja að helstu orsakir erfiðleika í heilbrigðisþjónustu í dag sé of mikil áhersla á sérhæfingu. Heilbrigðiskerfi þurfa almennt ekki sérfræðinga á einu sviði til að stjórna og skipuleggja, heldur einstaklinga eða leiðtoga sem geta tekist á við ágreining innan kerfisins, leitt fólk til samstarfs og gert nýja sýn í heilbrigðisþjónustu að veruleika."]},{"key":"dc:title","label":"Title","values":["Forysta í nýjum heimi"]}]}],"canonical_facts":{"dc:contributor":["Háskólinn á Bifröst"],"dc:creator":["Arnheiður Guðmundsdóttir 1949-"],"dc:date.accessioned":["2010-08-26T13:58:17Z"],"dc:date.available":["2010-08-26T13:58:17Z"],"dc:date.issued":["2010-08-26"],"dc:description.abstract":["Óstöðugleiki og breytingar einkenna okkar tíma en slíkt ástand kallar á nýjar hugmyndir um forystu og leiðtoga. Á okkar dögum þarf leiðtoginn að einbeita sér að möguleikum framtíðarinnar og hjálpa fólki að sjá heiminn í nýju ljósi. Hlutverk leiðtoga er að leiða fólk til þátttöku í verkefnum og kenna því að vinna með nýjum aðferðum. Leiðtogi framtíðarinnar þarf að leiða saman fólk og ólík sjónarmið, hafa styrk til að skapa samkomulag í samfélaginu og byggja brýr á milli ólíkra hópa. Það er þessi eiginleiki sem helst mun greina leiðtoga framtíðarinar frá leiðtogum fortíðarinnar Leiðtogar skapa nýja framtíðarsýn með því að breyta sjónarhorni sínu og átta sig á því hvað þeir sjá og hvernig þeir sjá. Leiðtogar verða að þjálfa færni sína í að greina aðstæður í samtímanum til að geta séð fyrir ný tækifæri og nýjan tilgang í framtíðinni. Á tímum alþjóðavæðingar er nauðsynlegt að hafa góða yfirsýn og skoða á málin út frá heildarsamhenginu. Eitt mikilvægasta verkefni skipulagsheilda á umbreytingatímum er að endurnýja sig. Á umbrotatímum leita á huga fólks spurningar eins og; hver er ég og hvert er hlutverk mitt? Svarið veltur á því hvaðan það kemur, hvort það kemur frá uppsprettu sérhagsmuna eða frá uppsprettu heildarhagsmuna sem bendir til dýpri skilnings á veruleikanum eins og hann er. Kenning U í leiðtogafræðum (e. Theory U) getur upplýst leiðtogann um hvernig hann á að þjálfa forystuhæfileika sína og hvernig kenninguna má nota við raunhæfar aðstæður. U-ferlið er eins konar leiðarakort til að auðvelda einstaklingum að stíga inn í mikilsverðar breytingar og sjálfsskoðun. Þegar leiðtoginn þróar forystuhæfileika sína er hann jafnframt að styrkja sjálfsmynd sína og andlega færni en nýar hugsjónir forystu byggjast nú fremur á því hver leiðtoginn er en hvað hann gerir. Nýjar aðferðir í leiðtogafræðunum eru aðeins ein birtingarmynd þeirra breytinga sem eru að verða á flestum sviðum vísinda og hugmyndir um hlutverk leiðtogans í framtíðinni gera ráð fyrir því að vísindamenn úr ólíkum greinum samhæfi krafta sína og bregðist við verkefnum með öðrum hætti en áður. Sumir fræðimenn telja að helstu orsakir erfiðleika í heilbrigðisþjónustu í dag sé of mikil áhersla á sérhæfingu. Heilbrigðiskerfi þurfa almennt ekki sérfræðinga á einu sviði til að stjórna og skipuleggja, heldur einstaklinga eða leiðtoga sem geta tekist á við ágreining innan kerfisins, leitt fólk til samstarfs og gert nýja sýn í heilbrigðisþjónustu að veruleika."],"dc:identifier.uri":["http://hdl.handle.net/1946/6067"],"dc:language.iso":["is"],"dc:subject":["Viðskiptafræði","Heilbrigðisþjónusta","Leiðtogar"],"dc:title":["Forysta í nýjum heimi"],"dc:type":["Thesis"]},"updated_at":"2026-07-27T18:54:29Z"}