Abstract
dc:description.abstractSparisjóðir hafa gegnt mikilvægu samfélagslegu hlutverki hér á landi en upphaflegt markmið þeirra var að stuðla að almannahag, efla byggðir og atvinnulíf, ávaxta aflögufé og standa á bak við þörf verkefni bæði í kaupstöðum og sveitum landsins. Á ndanförnum árum hafa orðið breytingar á starfsemi sjóðanna samhliða þeirri þróun og þeim breytingum sem hafa átt sér stað á jármálamörkuðum. Rannsóknin fólst í því að athuga hvort munur væri á arðsemi eigin fjár milli viðskiptabankastarfsemi sparisjóðanna og fjárfestingastarfsemi þeirra. Rekstrar- og efnahagsreikningum frá árinu 2000 til 2008 var endurraðað með það að markmiði, að sjá hvernig arðsemi eigin fjár skiptist á milli viðskiptabanka- og fjárfestingastarfsemi. Hver og einn starfandi sparisjóður var reindur með þessum hætti og auk þess voru niðurstöðurnar dregnar saman þannig að hægt væri að sjá hvernig rekstri sparisjóðanna er háttað í heild sinni. Tilgáta rannsóknarinnar er að munur sé á milli arðsemi eigin fjár viðskiptabanka- og fjárfestingastarfsemi sparisjóðanna á árunum 2000-2008. Til að kanna muninn á þessum tegundum bankastarfsemi var stuðst við rekstur og efnahag sparisjóðanna, kennitölur, lýsandi tölfræði og t-próf þar sem jafnframt var kannað hvort munur væri á starfseminni milli tímabilanna 2000-2003 og 2004-2008. Niðurstaðan var t(166)=1,65, p>0,10 þannig að ekki reyndist vera munur á milli arðsemi eigin fjár viðskiptabankastarfsemi og fjárfestingastarfsemi sparisjóðanna á árunum 2000-2008. Þegar skoðað var hvort munur væri á milli tímabila kom í ljós að munur var á fjárfestingastarfsemi sjóðanna á árunum 2000-2003 og 2004-2008 þar sem niðurstaðan var t(94)=1,66, p≤0,10.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jón Fannar Guðmundsson 1980-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/6063
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/6063