Abstract
dc:description.abstractÍ kjölfar bankahruns hér á landi árið 2008 hefur markaðsmisnotkun verið mikið til umfjöllunar. Almenningur hefur óljósar hugmyndir um hvað teljist til markaðsmisnotkunar og almennt séð er ekki mikið fjallað um hugtakið í mörgum fræðibókum Markmið ritgerðarinnar er að fjalla um þær reglur sem gilda um markaðsmisnotkun hér á landi. Ritgerðinni er í senn ætlað að vera ákveðið yfirlitsrit yfir þekkt tilvik markaðsmisnotkunar og veita lesandanum innsýn í þau sjónarmið sem horft er til við mat á því hvort atvik teljist til markaðsmisnotkunar. Í lok ritgerðarinnar eru málsatvik þekktra mála úr þjóðlífinu tekin til skoðunar og lagt mat á hvort jafna megi tilvikin undir markaðsmisnotkun. Í þessari umfjöllun er sú umfjöllun sem þegar hefur átt sér stað í fyrri köflum ritgerðarinnar nýtt til rökstuðnings. Eftir lestur á þessari ritgerð ætti lesandinn að hafa öðlast ríkan skilning á íslensku ákvæði markaðsmisnotkunar. Hvað felst í markaðsmisnotkun, hvaða sjónarmið skipta þar helst máli og um leið hvernig forðast megi markaðsmisnotkun.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Börkur Ingi Jónsson 1980-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/6053
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/6053