Back to results

Bifröst University

Mansal skv. 227. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940

Abstract

dc:description.abstract

Í ritgerð þessari verður fjallað um mansal skv. 1. tl. 1. mgr. 227. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákvæðið er svohljóðandi: ,,Hverjum þeim sem gerist sekur um eftirtalda verknaði, einn eða fleiri, í þeim tilgangi að misnota mann kynferðislega eða til nauðungarvinnu eða til að nema á brott líffæri hans skal refsa fyrir mansal með allt að 8 ára fangelsi: 1. Að útvega, flytja, afhenda, hýsa eða taka við einstaklingi og við það er beitt eða hefur verið beitt ólögmætri nauðung skv. 225. gr., eða frelssviptingu skv. 226. gr., eða hótun skv. 233. gr. eða ólögmætum blekkingum með því að vekja, styrkja eða hagnýta sér villu viðkomandi um aðstæður eða með því að hagnýta sér bága stöðu viðkomandi.“ Af ofangreindu er ljóst að mansal felur í sér tiltekinn verknað, aðferð og tilgang. Algengasta birtingarmynd mansals er kynferðislegur tilgangur þess. Mansal og hagnýting vændis eru því nátengd fyrirbæri. Dómaframkvæmd erlendis sýnir að mörkin milli þessara háttsemi geta verið óljós en verknaðaraðferð ákvæðisins virðist aðallega skilja þar á milli. Þróun aðgerða hjá alþjóðasamfélaginu hefur verið ör þegar kemur að skipulagðri brotastarfsemi og mansali. Á síðustu árum hefur vitnavernd fengið aukið vægi í baráttunni gegn mansali. Ástæðuna má rekja til tvíþætts tilgangs verndarinnar annars vegar mannúðarsjónarmiða og hins vegar rannsóknarhagsmuna. Samstarf fórnarlamba mansals við rannsókn og saksókn hefur mikla þýðingu fyrir lyktir mála af þessu tagi. Rannsóknir sýna að afleiðingar mansals á fórnalömb þess og sú staðreynd að mansal er oft framkvæmt af skipulögðum glæpahópum, hefur það í för með sér að framburður vitna er misvísandi í málum af þessu tagi. Þeirrar tilhneigingar hefur gætt í dómaframkvæmd að tillit er tekið til þessa. Hér á landi hafa tveir dómar gengið þar sem ákært var fyrir mansal. Í öðrum þeirra var ákærða sýknuð en í hinum voru fimm af sex ákærðu sakfelldir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Lilja Margrét Olsen 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/6026
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/6026

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Lilja Margrét Olsen 1981-. Mansal skv. 227. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. 2010. http://hdl.handle.net/1946/6026