Back to results

Bifröst University

Almannaheillafélög sem hvati í menningu : Skattalegir hvatar almannaheillafélaga til eflingar lista og menningar

Abstract

dc:description.abstract

Í rannsókninni er kannað hvernig almannaheillafélög geti nýst sem skattahvati í menningarstefnu án þess að draga úr sjálfstæði og fjölbreytni núverandi stuðningskerfis. Þótt opinber stuðningur hafi verið ráðandi í íslenskri menningarstefnu og einkaframlög lítið nýst, er nú horft til fjölbreyttari úrræða í takt við þróun norræns menningarvistkerfi. Beitt var blandaðri aðferðafræði þar sem megindleg greining á opinberum gögnum og skýrslum var sameinuð hálfopnum viðtölum við lykilaðila í menningar- og listageiranum. Niðurstöðurnar sýna að almannaheillaskráin er lítið nýtt í menningu, einkum vegna óljósrar skilgreiningar á almannaheillastarfi, takmarkaðrar kynningar og stjórnsýslulegra hindrana. Viðmælendur bentu á að skráin gæti skapað ný tækifæri til að efla sjálfbærni og fjölbreytni, að því tilskildu að umsóknarferli verði einfaldara, kynning markvissari og samspil við önnur stuðningsform tryggt. Í samanburði við Bretland, Svíþjóð og Danmörku kemur fram að almannaheillafélög geta verið lykilverkfæri til að virkja einkafjármögnun með skattalegum hvötum til viðbótar við opinberan stuðning. Rannsóknin bendir því til að skattahvatar geti styrkt menningarstuðning á Íslandi, svo framarlega sem armslengd sé virt, stjórnsýslan gerð aðgengilegri og gagnsæi aukið.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Rakel Mjöll Leifsdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/54341
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/54341

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Rakel Mjöll Leifsdóttir 1989-. Almannaheillafélög sem hvati í menningu : Skattalegir hvatar almannaheillafélaga til eflingar lista og menningar. 2026. https://hdl.handle.net/1946/54341