Bifröst University
Skipulögð brotastarfsemi með áherslu á greinarmun á samverknaði skv. 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga í verkskiptri aðild og skipulögðum brotasamtökum skv. 2. mgr. 175. gr. a. með félagsskap þriggja.
Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi fjallar um skipulagða brotastarfsemi og hvernig hún birtist í íslenskum refsirétti. Sérstök áhersla er lögð á greinarmun á samverknaði skv. 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga með verkskiptri aðild og skipulögðum brotasamtökum samkvæmt 2. mgr. 175. gr. a almennra hegningarlaga. Með þessari umfjöllun er leitast við að varpa ljósi á þau skilyrði sem þurfa að vera uppfyllt til að beita annars vegar refsiþyngingarákvæði, sbr. 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga, og hins vegar til að sakfella á grundvelli 2. mgr. 175. gr. a almennra hegningarlaga. Í upphafi ritgerðarinnar er fjallað almennt um eðli, einkenni og þróun skipulagðrar brotastarfsemi, bæði í íslensku og alþjóðlegu samhengi, og er með því lagður grunnur fyrir frekari greiningu. Þá er rýnt í lagasetningu um skipulögð brotasamtök í íslenskum lögum og gerð grein fyrir tengslum lagaákvæða við alþjóðlega samninga, svo sem samning Sameinuðu þjóðanna gegn fjölþjóðlegri glæpastarfsemi. Þar á eftir er gerður samanburður á sambærilegum lagaákvæðum í norrænum rétti. Í framhaldinu er dómaframkvæmd íslenskra dómstóla greind ítarlega með það að markmiði að sýna fram á hvernig dómstólar hafa í gegnum tíðina greint á milli samverknaðar og þátttöku í skipulagðri brotastarfsemi. Að lokum eru helstu niðurstöður dregnar saman.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Vignir Ingi Eggertsson 1997-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53892
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53892