Back to results

Bifröst University

Skipulögð brotastarfsemi með áherslu á greinarmun á samverknaði skv. 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga í verkskiptri aðild og skipulögðum brotasamtökum skv. 2. mgr. 175. gr. a. með félagsskap þriggja.

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi fjallar um skipulagða brotastarfsemi og hvernig hún birtist í íslenskum refsirétti. Sérstök áhersla er lögð á greinarmun á samverknaði skv. 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga með verkskiptri aðild og skipulögðum brotasamtökum samkvæmt 2. mgr. 175. gr. a almennra hegningarlaga. Með þessari umfjöllun er leitast við að varpa ljósi á þau skilyrði sem þurfa að vera uppfyllt til að beita annars vegar refsiþyngingarákvæði, sbr. 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga, og hins vegar til að sakfella á grundvelli 2. mgr. 175. gr. a almennra hegningarlaga. Í upphafi ritgerðarinnar er fjallað almennt um eðli, einkenni og þróun skipulagðrar brotastarfsemi, bæði í íslensku og alþjóðlegu samhengi, og er með því lagður grunnur fyrir frekari greiningu. Þá er rýnt í lagasetningu um skipulögð brotasamtök í íslenskum lögum og gerð grein fyrir tengslum lagaákvæða við alþjóðlega samninga, svo sem samning Sameinuðu þjóðanna gegn fjölþjóðlegri glæpastarfsemi. Þar á eftir er gerður samanburður á sambærilegum lagaákvæðum í norrænum rétti. Í framhaldinu er dómaframkvæmd íslenskra dómstóla greind ítarlega með það að markmiði að sýna fram á hvernig dómstólar hafa í gegnum tíðina greint á milli samverknaðar og þátttöku í skipulagðri brotastarfsemi. Að lokum eru helstu niðurstöður dregnar saman.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Vignir Ingi Eggertsson 1997-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53892
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53892

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Vignir Ingi Eggertsson 1997-. Skipulögð brotastarfsemi með áherslu á greinarmun á samverknaði skv. 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga í verkskiptri aðild og skipulögðum brotasamtökum skv. 2. mgr. 175. gr. a. með félagsskap þriggja.. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53892